Rannsókn hóps fornleifafræðinga og annarra sérfræðinga hefur leitt í ljós að rústir nærri Narsarsuaq á Suður-Grænlandi eru stór miðaldakirkja. Þar fannst einnig beinagrind norræns manns.
Rannsóknarstjórinn Christian Edelfelt Koch Madsen segir að þetta séu stórtíðindi sem kalli á endurmat á mikilvægi svæðisins fyrir Norðurlöndin öll. KNR fjallar um málið.
Lengi hefur verið grunað að rústirnar gætu verið kirkja frá tímum norrænna manna en óyggjandi sannanir skorti. Beinagrindin sem fannst sneri með höfuðið í austur sem er einkennandi fyrir kristna greftrunarsiði.
Inúítar hafi verið grafnir undir steinhleðslum en kristnir menn í kirkjugörðum. Madsen segir því engum vafa undirorpið að rústirnar séu kirkja sem getið er í rituðum heimildum. Þar er heita kirkna og staðsetninga getið. Þjóðminjasafn Danmerkur segir að yfir sex áratugir séu liðnir síðan kirkja frá tímum norrænna manna fannst á Grænlandi.
Kallar á endurmat á skipulagi og uppbyggingu valdastrúktúra norrænna manna
Allar hafi verið litlar og augljóslega notaðar um skamma hríð. Þessi er stærri og virðist hafa verið notuð allar miðaldir. Madsen segir að uppgötvunin kalli á að leitað verði að rústum fleiri kirkna sem finna má í heimildunum.
Þegar hafa fundist sex kirkjur í Qassiarsuk, þar sem hét Brattahlíð á tímum Eiríks rauða. Sá fjöldi stórra kirkna á tiltölulega litlu svæði segir Madsen að bendi til að menn hafi með byggingu þeirra viljað sýna völd sín og stöðu. Einnig eru merki um þorpsmyndun.
Einhverjir kunni hafi orðið undir í kapphlaupinu og yfirgefið bæi sína og kirkju líkt og þá við Narsarsuaq. „Hvað sem því líður þýðir fundurinn að við verðum að líta á svæðið í nýju ljósi og endurmeta skipulag og valdauppbyggingu norrænna manna á miðöldum,“ segir Madsen.
Rannsóknin var gerð í samvinnu Þjóðminjasafns og Þjóðskjalasafns Grænlands, Þjóðminjasafns Danmerkur, Safns Háskólans í Bergen og UNESCO.