Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn konu um greiðsluþátttöku í lækniskostnaði erlendis, vegna fylgikvilla í kjölfar brjóstastækkunaraðgerðar. Fram kemur í úrskurðinum að Sjúkratryggingar hafi greitt fyrir að láta fjarlægja sílikonpúðana úr brjóstum konunnar þegar þeir fóru að leka. Hins vegar lak sílikon út í vefi og eitla og þörf var á sérstakri aðgerð vegna þess.
Borga fyrir taka leka sílikonpúða úr brjóstum en ekki fyrir að lækna fylgikvillana