Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur staðfest að allar B-1 sprengjuflugvélar flughersins hafi verið kallaðar heim frá Fairford-herstöðinni á Bretlandi. Bandaríkjaher hefur fengið að nota flugvöllinn sem bækistöð í stríðinu gegn Íran.
Bresk stjórnvöld gáfu sérstakt leyfi þess efnis í mars. Síðan hafa fjölmargar bandarískar herflugvélar farið um völlinn. Fimm Lundúnabúar á þrítugsaldri voru í lok september handteknir nærri flugvellinum grunaðir um ráðabrugg um hryðjuverk en hefur verið sleppt gegn tryggingu.
Ekkert sprengiefni fannst í sendibílum mannanna heldur talsvert magn eldsneytis sem talið er stolið.
Einn bílanna var merktur fölsuðu vörumerki olíuflutningafyrirtækis og símanúmeri. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist aldrei hefðu sleppt þeim og utanríkisráðherrann Marco Rubio gaf í skyn að erlend öfl hefðu staðið að baki.
Írönsk stjórnvöld fordæma allar vangaveltur um aðild þeirra. Atvikið varð til þess að fjölmargir íbúar í nágrenni vallarins urðu að yfirgefa heimili sín tímabundið og öryggisgæsla aukin stórlega.