Bandaríski utanríkisráðherrann Marco Rubio er væntanlegur hingað til lands í dag til að ræða við ráðamenn um samvinnu á sviði efnahags- og öryggismála. Frá þessu er greint í tilkynningu bandaríska utanríkisráðuneytisins.
Þetta er fyrsta heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna síðan Antony Blinken kom til Íslands árið 2021. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tilkynnti um heimsókn Rubios 1. október og sagði þá að samstarf í varnarmálum vegi þyngst í samskiptum ríkjanna ásamt öryggi á norðurslóðum og viðskiptum.
Í umfjöllun AFP-fréttaveitunnar er sagt að með heimsókninni vilji Rubio gæta hagsmuna Bandaríkjanna á norðurslóðum. Með aukinni samkeppni um yfirráð norðurslóða hafi Ísland endurheimt mikilvægi sitt í öryggismálum þótt landið reiði sig áfram verulega á Bandaríkin í þeim efnum.
Heimsókn Rubios sé hvort tveggja táknræn og pólitísk í ljósi þess öryggissamkomulags sem Bandaríkin gerðu við Danmörku og Grænland seint í september.
Samkomulagið virðist hafa bundið endi á hótanir Donalds Trump um innlimun Grænlands þótt hann hafi í gær einu sinni enn endurbirt mynd sem sýnir hann gægjast yfir fjallstoppa með yfirskriftinni „Halló Grænland“.
Einnig er rifjað upp að Þorgerður Katrín kallaði Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna, á sinn fund til að koma því skýrt á framfæri hversu óviðeigandi það hefði verið að Donald Trump forseti birti gervigreinarmynd á samfélagsmiðlum sem sýndi Ísland og fleiri lönd þakin bandaríska fánanum.
Héðan heldur Rubio til Grikklands til viðræðna um varnarmál og orkuöryggi og þaðan fer hann í stutta heimsókn til Portúgal.