Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð lagði flutningana til samkvæmt nýrri fundargerð frá fundi þess 1. október. Mbl greindi fyrst frá. Í fundargerðinni er vísað í skýrslu sérfræðinga í loftgæðamælingum sem sýnir fram á „alvarlegt ástand loftgæða í kjallara og á fyrstu hæð ráðhússins“.
Loftgæðin mælast innan marka á annarri hæð hússins en þarfnast samt sem áður nánari skoðunar. Vegna þessa leggur ráðið til að flytja starfsemina í félagsheimilið. Það er þó ekki langt að fara fyrir starfsmenn ráðhússins en um 170 metrar eru á milli húsanna tveggja.
Í skýrslu sérfræðinganna segir að niðurstöðurnar „gefa sterka vísbendingu um umtalsverða sveppauppsprettu sem geti tengst virkum mygluvexti“. Ekki sé hægt að segja að húsið sé í góðu ástandi og þörf er á ítarlegri hreinsun samhliða rannsókn á upptökum og dreifingu.