Starf á vettvangi stóð yfir meira og minna allan daginn og lauk ekki fyrr en undir kvöld en þá lauk rannsóknarvinnu á slysstað. Rauði krossinn hafi verið meðal þeirra sem voru kallaðir á staðinn til að sinna sálgæslu, bæði fyrir þá sem lentu í slysinu og þá sem sinntu hlutverki í björgunaraðgerðunum á staðnum.
„Við reyndum að aðstoða og halda utan um alla sem komu að eins vel og hægt var,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, í samtali við fréttastofu.
Það hafi legið mjög fljótlega fyrir að slysið væri alvarlegt og viðbragðið eftir því. Enn liggi ekki fyrir hvernig akstursskilyrði voru á veginum í gær en það hafi ekki virst við fyrstu sýn að það væri neitt sérstakt á vegi, svo sem hálka.
„Það er auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi en vettvangsvinnan gekk vel miðað við þá áætlun sem var virkjuð og þann fjölda sem kom að þessu,“ segir Kristján en hann telji sjálfa verkferla hafa verið vel úr garði gerða „þó að afleiðingar slyssins hafi verið hörmulegar.“
Samkvæmt sjónarvotti átti slysið sér stað uppi á Jökuldalsheiði þar sem ein bifreið sást utan vegar og önnur á hvolfi. Alls voru átta um borð í bifreiðunum tveimur en þeir látnu voru erlendir ferðamenn á sjötugsaldri.