Rupert Lowe, leiðtogi breska stjórnmálaflokksins Restore Britain, boðar umfangsmiklar fjöldabrottvísanir verði flokkur hans við völd í Bretlandi. Í nýrri ræðu sagði Lowe að markmiðið væri ekki aðeins að draga úr fjöldainnflytjendum eða stöðva þá, heldur snúa þróuninni við.
„Sérhver karl, kona og barn sem dvelur ólöglega í landinu okkar verður fundið og vísað úr landi,“ sagði Lowe.
Síðan kom ein eftirminnilegasta setning ræðunnar:
„Bátarnir munu stöðvast og flugvélarnar fara af stað.“
Restore Britain hefur þegar birt stefnu þar sem flokkurinn boðar það sem hann kallar umfangsmestu fjöldabrottvísanir í sögu Bretlands. Flokkurinn telur að allt að tvær milljónir manna kunni að dvelja ólöglega í landinu og vill að þeim öllum verði vísað úr landi.
Vill „snúa við“ fjöldainnflytjendum
Lowe sagði í ræðunni að ólöglegir innflytjendur væru aðeins hluti vandans. Að hans mati kæmi stærsti hluti innflytjenda ekki yfir Ermarsundið á smábátum heldur um flugvellina Heathrow, Gatwick og Stansted.
„Markmið okkar er skýrt. Ekki hægja á fjöldainnflytjendum eða stöðva þá – heldur snúa þeim við,“ sagði Lowe.
Hann sagði að erlendir ríkisborgarar sem vildu búa í Bretlandi yrðu meðal annars að tala ensku, virða breska sögu og menningu, aðlagast samfélaginu, virða lög og hafa færni sem gagnist landinu.
Þá sagði Lowe að erlendir ríkisborgarar sem byggju í félagslegu húsnæði og þægju bætur yrðu látnir yfirgefa Bretland. Sama ætti við um erlenda ríkisborgara sem gætu ekki talað ensku.
Engir fleiri innflytjendur frá Pakistan
Lowe gekk enn lengra þegar hann kynnti áform um svokallaðan rauðan lista ríkja.
Hann nefndi sérstaklega Sómalíu, Pakistan, Erítreu, Albaníu, Afganistan, Íran og Bangladess og sagði að almennum innflytjendum frá þessum ríkjum og fleiri löndum yrði lokað.
„Það verða ekki fleiri pakistanskir innflytjendur til Bretlands,“ sagði Lowe.
Hann sagði jafnframt að „róttækir íslamistar“ yrðu fjarlægðir úr bresku samfélagi og að stjórnvöld undir forystu Restore Britain myndu ekki bíða eftir næstu hryðjuverkaárás áður en gripið yrði til aðgerða.
Vill endurskoða veitingu ríkisborgararéttar
Restore Britain hyggst einnig ráðast í umfangsmikla endurskoðun á breskum ríkisborgararétti.
Lowe sagði að sérstaklega yrði leitað að tilvikum þar sem ríkisborgararéttur hefði fengist með svikum eða blekkingum. Þar sem slíkt sannaðist yrði breskt vegabréf afturkallað og viðkomandi vísað úr landi.
Flokkurinn vill stofna sérstaka Office for Citizenship Standards, eða skrifstofu um staðla ríkisborgararéttar, til að annast verkefnið.
Lowe sagði jafnframt að ríkisstjórn Restore Britain myndi stöðva nýjar veitingar ríkisborgararéttar að öðru leyti en vegna hjónabands, þar sem ströngum svikaeftirlitsreglum yrði beitt.
Vill sækja embættismenn og stjórnmálamenn til saka
Í lok ræðunnar beindi Lowe síðan spjótum sínum að breska stjórnkerfinu.
Hann sagði að embættismenn, opinberir starfsmenn og stjórnmálamenn sem hefðu vitandi vits auðveldað það sem hann kallaði „innrás“ í Bretland og komið óskimuðum og hættulegum mönnum fyrir í samfélögum landsins yrðu rannsakaðir.
„Við munum stefna að því að sækja þá til saka og þar sem við á verða þeir sendir í fangelsi,“ sagði Lowe.
Flokkur Lowe farinn að bíta Reform
Ræðan kemur á athyglisverðum tíma í breskum stjórnmálum. Restore Britain var stofnaður af Lowe eftir harkalegan aðskilnað hans við Reform UK og Nigel Farage og sækir nú fylgi sitt að stórum hluta til kjósenda hægra megin við Reform.
Í aukakosningum í Claremont-kjördæmi í Blackpool í vikunni fékk Restore Britain 7% atkvæða. Reform UK fékk 38% en Verkamannaflokkurinn hélt sætinu með 42%. Atkvæðin til Restore voru því fleiri en munurinn á Reform og Verkamannaflokknum.
Farage viðurkenndi sjálfur í viðtali við The Times sem birtist á sunnudag að Restore væri „byrjað að skaða okkur“. Hann áætlaði að þrjú prósentustig af fylgi Restore hefðu komið frá Reform.
Greining Public First sem The Times vísar til bendir jafnframt til þess að Reform gæti fengið 108 þingmenn í næstu þingkosningum ef Restore væri ekki með frambjóðendur alls staðar, en aðeins 59 ef Restore byði fram í öllum kjördæmum.
Lowe virðist hins vegar ekki hafa í hyggju að milda málflutninginn til að auðvelda Farage lífið.
„Í stuttu máli mun ríkisstjórn Restore Britain binda enda á tímabil fjöldainnflytjenda,“ sagði hann.
Myndband af ræðu Rupert Lowe má sjá hér að neðan.