Þetta staðfestir Jóhann Karl Þórisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Nokkrir fulltrúar lögreglunnar mættu á svæðið um klukkan níu og voru á vettvangi þar til hátíðarhöldin leystust upp um miðnætti. Að sögn sjónarvotta fór síðasti lögreglubíllinn af vettvangi um klukkan eitt.
Ekki voru höfð mikil afskipti af gestunum og voru fáir mættir. Engin vopn voru gerð upptæk.
Lögreglan hefur ítrekað fylgst með Vítisenglunum og sagði fulltrúi lögreglunnar í samtali við Vísi fyrir ári að til stæði að hafa afskipti af samkomum samtakanna í framtíðinni.
Í byrjun september á síðasta ári voru þrír handteknir á samkomu Vítisenglanna. Vélhjólasamtök á borð við Vítisengla, þekkt erlendis sem Hell's Angels, og fleiri eru skilgreind sem skipulögð glæpasamtök af Europol.