Heilbrigðisráðherra fékk fyrir hádegi afhentan undirskriftarlista með 600 nöfnum þar sem lokun hjúkrunardeildarinnar Ljósheima við sjúkrahúsið á Selfossi er harðlega mótmælt.
Samhliða nýbyggingu við sjúkrahúsið verður Ljósheimum lokað og lokast þá 20% hjúkrunarrýma í Árborg.
Það var Aldís Sigfúsdóttir, sem býr á Selfossi, sem gekk á fund heilbrigðisráðherra, Ölmu D. Möller nú rétt fyrir hádegi og afhenti henni undirskriftarlistann í heilbrigðisráðuneytinu við Skúlagötu í Reykjavík.
Málið snýst um það að nú á að fara að byggja um 5.000 fermetra byggingu við sjúkrahúsið á Selfossi en á sama tíma verður hjúkrunarheimilið Ljósheimar lagt niður en þar eru tuttugu hjúkrunarrými.
Aldís og þeir 600 sem skrifuðu undir mótmælabréfið eru mjög ósátt við lokunina og segja það stórt högg fyrir stærsta þjónustukjarna héraðsins, Sveitarfélagið Árborg að missa þessi tuttugu hjúkrunarrými.
„Það er líka annað, þetta er í nýlegu húsnæði og það er líka svolítið gróft að vera að taka húsnæði, sem var tekið í notkun splunkunýtt og byggt sérstaklega sem hjúkrunarheimili 2008 og fara að rústa því og setja aðra starfsemi þarna. Og sú framkvæmd mun að öllum líkindum kosta um hálfan milljarð. Ég held að það sé miklu nær að byggja við vesturendann, við heilsugæsluna, hugmyndin er að heilsugæslan fari í þetta rými,” segir Aldís.
Hvað verður um fólkið á Ljósheimum þegar starfsemin verður lögð niður?
„Ég veit það ekki, þau fara sjálfsagt hingað og þangað”, segir Aldís.
En hvað heldur þú að heilbrigðisráðherra geri með málið?
„Ég bara veit það ekki en ég vona að hún taki þetta til endurskoðunar og reyni að skoða skipulagið, vita hvort það sé ekki hægt að finna leið í skipulaginu þannig að vera ekki að eyðileggja Ljósheima. Hún hefur valdið og hún getur þetta, að halda í og láta Ljósheima vera áfram,” segir Aldís.