Meirihluti Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins sem myndaður var eftir kosningarnar í maí sprakk í gær eftir fjögurra mánaða samstarf. Alls eru níu fulltrúar í bæjarstjórn. Í lok maí náðu þrír fulltrúar Samfylkingarinnar og tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokks saman um myndun meirihluta í bæjarfélaginu og í ágúst réðu flokkarnir Alexöndru Jóhannesdóttur sem ópólitískan bæjarstjóra.
Samkvæmt heimildum Vísis barst Samfylkingarfólki til eyrna að Haraldur Helgason, bæjarfulltrúi og annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurnesjabæ, hefði gert tilraun til að mynda meirihluta með Miðflokknum og Framsóknarflokknum. Um hefði verið að ræða ríkari meirihluta en sá sem fyrir var eða með sex fulltrúum á móti þá þremur bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar í minnihlutanum.
Samkvæmt heimildum Vísis er Samfylkingarfólk óvisst um að Haukur Andreasson, forseti bæjarstjórnar og efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins, hafi verið meðvitaður um plön Haraldar. Það flækir málin að um er að ræða tvo fulltrúa sama flokks í átta ára gömlu sameinuðu sveitarfélagi þar sem Haukur er búsettur í Sandgerði en Haraldur er fulltrúi flokksins í Garði. Í sameinuðu sveitarfélagi koma reglulega upp álitamál hvort verkefni í Garði eða Sandgerði séu meira aðkallandi. Hagsmunir bæjarfulltrúa sama flokks geta því verið ólík.
Raunar var það ein af helstu áherslum nýs meirihluta Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins í nýjum meirihluta að gæta eftir fremsta megni jafnræðis á milli bæjanna tveggja í sveitarfélaginu enda allir meðvitaðir um þá flækju sem getur skapast um forgangsröð þegar bæirnir eru tveir. Í tilkynningu á heimasíðu bæjarins þann 9. september var sérstaklega tilkynnt um „metnaðarfulla framtíðarsýn“ sem fulltrúar beggja flokka meirihlutans og bæjarstjóri skrifuðu undir.
„Undanfarnar vikur hafa bæjarfulltrúar unnið markvisst að því að ná sameiginlegri niðurstöðu um þessi mikilvægu verkefni. Sú vinna hefur skilað samkomulagi um megináherslur sem allar fylkingar í bæjarstjórn standa að,“ sagði á heimasíðu bæjarins. Innan við mánuði síðar er meirihlutinn sprunginn.
Í framtíðarsýninni var tæpt á ýmsum málum en meðal þeirra var staðninga bæjarskrifstofu og lagning gervigrasvallar á aðalvelli Reynis í Sandgerði. Knattspyrnuaðstaða fyrir börn í Garði yrði bætt. Um er að ræða tvö álitamál sem brunnið hafa á íbúum sveitarfélagsins.
Samkvæmt heimildum Vísis var þetta eitt af þeim atriðum sem Sjálfstæðismönnum í Garði leist illa á. Það væri ofar á blaði hjá þeim að fara í uppbyggingu á slíku svæði á um fimm kílómetra svæði á milli bæjanna tveggja sem íbúar í báðum bæjum sveitarfélagsins hefðu jafnan aðgang að.
Við þetta má bæta að Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti óvænt fyrir tíu dögum að hún hygðist hætta sem varabæjarfulltrúi um mánaðamótin. Vísaði hún til persónulegra ástæðna en samkvæmt heimildum Vísis snýr málið að vantrausti til bæjarfulltrúa flokksins.
Haukur Andreasson, forseti bæjarstjórnar, tjáði Vísi að von væri á tilkynningu frá flokknum vegna málsins eftir hádegi í dag. Þá var Haraldur mjög upptekinn en til í að ræða málin frekar þegar liði á daginn.