Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.
Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir fjögurra bíla árekstur á Austurlandi þar sem tveir aðrir létust eru ekki lengur í lífshættu.
Lögreglan ákveður síðar í dag hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir manni sem var handtekinn við komu til landsins í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi. Handtakan tengist rannsókn á fíkniefnasölu og peningaþvætti, en sautján manns voru handteknir vegna málsins í síðasta mánuði.
Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðará við Rauðarárstíg í Reykjavík hefur verið sagt upp störfum. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á hótelinu næstu mánuði og stendur til að opna undir nýju merki á næsta ári.
Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor.
Í sportinu fjöllum við um landsleik Írlands og Ísraels sem fór fram í gær og hitum upp fyrir lokaleik Íslands þennan landsleikjagluggann.