Bókun 35 verður lögð fyrir Alþingi í vikunni í kjölfar þess að máli íslenska ríkisins var vísað til EFTA-dómstólsins. Rætt var við Sigríði og Pawel í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Hún segir bókun 35 verulega áhugavert umræðuefni og það sé ekkert tilefni til að „fleygja sér í fósturstellingu“ ef það kemur til tals. Það sé bæði áhugavert pólitískt og lögfræðilega.
Til að útskýra hvað bókun 35 er segir Sigríður að þegar Ísland skrifaði undir EES-samninginn hafi margir talið hann stangast á við stjórnarskrá og að það þyrfti að vera heimild í henni um slíkt framsal á valdi sem EES-samningurinn kveður á um að þeirra mati.
„Einhver skylda og skuldbindingar til að taka inn alls konar reglur,“ segir hún og að aðrir lögfræðingar hafi svarað því og að til að bregðast við þessari gagnrýni yrði sett upp „tveggja stoða kerfi“ þannig að það yrði sérstakur dómstóll sem tæki á ágreiningsmálum, annar en Evrópudómstóllinn, og að það ætti að láta reglurnar taka gildi sjálfkrafa á Íslandi. Það yrði að ræða þær á Alþingi eða að ráðherra setti þær í reglugerð.
Sigríður segir að fallist hafi verið á þetta en einnig hafi verið samþykkt að ef íslensk lög myndu skarast á við Evrópusambandsreglurnar sem væri verið að innleiða í lög þá myndu íslensku lögin alltaf forgang óháð því hversu gömul þau væru. Við þessu hafi verið brugðist með ákvæði í samningum með leiðbeiningum til dómstóla um að túlka íslensku reglurnar í samræmi við markmið EES-samningsins ef til ágreinings kemur.
„Þannig hefur þetta verið í 25 ár,“ segir Sigríður og að þó svo að það hafi komið upp ágreiningur sé það eðlilegt og slíkur ágreiningur eigi sér stað í öllum EES-ríkjum.
Pólitískt at í Evrópu
„Núna er komið, fyrir nokkrum árum, byrjaði það sem ég hef kallað pólitískt at frá EFTA, eftirlitsstofnun í Brussel, og mér hefur sýnst það helst af hálfu íslenskra starfsmanna þar, að segja að þetta sé ekki nóg og nú þurfi að ganga alla leið,“ segir Sigríður og við því segi hún nei.
Það sé óþarfi og gangi ekki upp með tilliti til íslenskrar lögfræði.
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir innleiðingu bókunarinnar ekkert endilega mikilvægari nú en fyrir tveimur árum en að niðurstaða íslenskra dómstóla, þar með talið Hæstaréttar, hafi verið sú að bókunin hafi ekki að fullu verið innleidd í íslenskan rétt.
„Þetta snýst um hvað á að gera ef lög sem eru að uppruna til Evrópulög og önnur lög stangast á. Íbúi í öðru ríki, hvort sem það er ESB-ríki eða Noregi, getur labbað inn í sinn dómstól og farið fram á að hann geti fengið ákveðin réttindi á grundvelli EES-samningsins eða Evrópulöggjafar. Hér á landi hefur komið fram að hér getur sá íbúi ekki gert það vegna þess að þessi forgangsáhrif eru ekki til staðar,“ segir Pawel.
Vilja tryggja forgangsáhrif
Því vilji núverandi stjórnvöld greiða úr þessu með því að setja slík forgangsáhrif inn.
„Þetta snýst ekki um að Evrópusambandið fái einhvern rétt til að setja lög á Íslandi. Þetta snýst um hvað á að gera þegar tvenn íslensk lög, lög sem Alþingi hefur samþykkt sem eru ekki að uppruna Evrópulög, og svo lög sem Alþingi hefur samþykkt og koma í gegnum EES-samninginn, stangast á, og þessi forgangsáhrif myndu í þeim tilfellum, þá myndi Evrópulöggjöfin hafa forgang, nema Alþingi ákveði af einhverjum ástæðum að það þurfi ekki,“ segir Pawel og að það hafi til dæmis verið gert í heimsfaraldri Covid.
Pawel segir Alþingi þannig alltaf hafa síðasta orðið en þetta ákvæði í lögunum verði að nýta „með opin augun“.
Sigríður segir Hæstarétt hafa komist að því réttilega í dómum að bókun 35 hafi ekki verið innleidd eins og stefnendur í þessum málum hafi óskað eftir að yrði dæmt eftir. Í fæðingarorlofsmálinu sem ítrekað er nefnt í þessu samhengi hafi til dæmis verið deilt um reglugerð um samræmingu almannatryggingakerfa. Reglugerðin hafi verið innleidd á Íslandi en bara með tilliti til reglna Evrópusambandsins á þeim tíma. Eftir því sem tíminn leið hafi sá skilningur breyst.
Sigríður bendir því á að Hæstiréttur hafi aldrei sagt að bókun 35 hafi ekki verið réttilega innleidd heldur hafi hann sagt að það sé ekki hægt að byggja á reglugerðinni gegn skýrum ákvæðum íslenskra laga.
Fara fram hjá bókun ef Alþingi hefur síðasta orðið
Hvað varðar það að Alþingi hafi síðasta orðið segir Sigríður að með því sé í raun verið að fara fram hjá bókuninni og telur að ESA, eftirlitsstofnun EFTA, samþykki það ekki endilega.
„Þetta er ekki þetta vandamál eins og menn vilja láta að.“
Pawel telur að ef bókunin verði ekki innleidd í þetta sinn sé líklegt að ESA haldi dómsmáli sínu gegn Íslandi til streitu. Hann telur líklegt að Ísland myndi tapa því máli og þurfa þá að bregðast við hvort eð er. Hann tekur fram að stjórnvöld vilji innleiða bókunina svo að íslenskir borgarar og fyrirtæki fái fullan rétt sem EES-samningurinn færir þeim.
„Við erum að gera þetta fyrir okkur, við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel eða Strassborg.“
Sigríður segir reglur Evrópusambandsins stundum orka tvímælis og stundum vegist á réttindi einstaklinga og fyrirtækja. Sigríður segir afleitt að Pawel gefi sér að Ísland tapi málinu gegn ESA. Hún segir ekki annað boðlegt en að taka til fullra varna í málinu og það sé góður málstaður að verja.
„Ég hef séð málflutning utanríkisráðuneytisins frá fyrri árum þar sem þessu er mótmælt með mjög málefnalegum og mjög lögfræðilega rökföstum hætti,“ segir hún og að það sé ekki annað hægt en að taka tillit til þeirra sjónarmiða.
Hún segir að ekki eigi að grafa undan stöðu Íslands í dómsmálinu með því að ræða það á þingi og „þjösna því í gegn“.
Hún segir að láta eigi á málið reyna og komist dómstóllinn að því að Ísland hafi verið að brjóta á EES-samningi sé komin upp önnur staða og það þurfi að ræða sérstaklega stöðu EES-samningsins og stjórnarskrárinnar. Mögulega þurfi að breyta stjórnarskránni af því tilefni.
Fæstir finni fyrir breytingu
Pawel segir að í bókun 35 sé kveðið á um það að ef þörf krefur sé sett forgangsregla þannig að Evrópulöggjöf gildi í þeim tilfellum þar sem tvö lagaákvæði stangast á og það sýnist á dómum Hæstaréttar að það sé þörf á slíkri reglu.
Pawel segir að ef bókunin yrði innleidd myndu fæstir finna fyrir því í sínu daglega lífi. Flestir Íslendingar séu ekki daglega að lögsækja ríkið vegna þess að lagaákvæði stangist á. Hann segir þetta tæknilegt úrlausnarefni svo að EES-samningurinn virki sem skyldi.
Sigríður segir þetta á móti prinsippmál og ekki lítið prinsippmál.
„Þetta er stórt mál sem varðar stjórnskipan Íslands í heild, ekki bara eitthvað fullveldisframsal,“ segir hún og að það sé verið að auka á réttaróvissu með innleiðingunni. Íbúar eigi að geta treyst því að lög sem séu sett á Alþingi í dag séu eins og texti hennar segi til um og gildi. Það sé ekki hægt að koma eftir á og segja að fyrir einhverjum hafi verið sett regla eða lög sem eigi rætur að rekja til Evrópusambandsins og ýta þessari reglu eða lögum til hliðar.
Viðtalið við Pawel og Sigríði er lengra og er hægt að hlusta á það allt að ofan.