Farsældarvísar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar gefa til kynna að fleiri grunnskólanemum líði vel í lífi og skóla en áður. Farsældarvísarnir eru hluti af rannsókninni sem lögð var fyrir 23.881 nemanda í 4. til 10. bekk í 153 grunnskólum.
Nemendum sem líður vel í kennslustundum hefur fjölgað úr 86% prósentum 2023 í 89% í vor og þeim sem meta andlega líðan sína og lífsánægju góða hefur fjölgað úr 57% í 62%.
Talsverðan kynjamun er þó enn að finna þegar líðan nemenda er könnuð. Helmingur stúlkna finnur fyrir að minnsta kosti tveimur af eftirfarandi fjórum þáttum oftar en einu sinni í viku. Það eru kvíði, depurð, pirringur og svefnörðugleikar. Strákar eru ólíklegri til að finna fyrir slíku.
Þeim sem eru oft þreytt í skólanum fækkar úr 36% í 30% og frá 2022 hefur þeim sem nota rafrettur, nikótínpúða og áfengi fækkað. Þeim sem höfðu orðið drukkin um ævina fækkaði úr 13,6% af heildinni í 8,8%.
Félagsleg tengsl eru almennt sterk og færri nemendur í 8. til 10. bekk en áður hafa orðið fyrir heimilisofbeldi, kynferðislegu ofbeldi, lent í slagsmálum eða orðið fyrir líkamsárás.
Farsældarvísarnir gefa til kynna að þróunin sé með öðrum hætti en starfsfólk félagsmiðstöðva lýstu í sumar. Þá töluðu þeir um meiri drykkjuvandamál en fyrir fimm árum.