Byrlun, blaðamennska og ásakanir um spillta lögreglu

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Blaðamenn afrituðu síma Páls skipstjóra Steingrímssonar eftir byrlun og stuld. Afritunin fór fram á RÚV. Eftir afritun var síma skipstjórans skilað á sjúkrabeð hans á Borgarspítala þar sem hann lá meðvitundarlaus á gjörgæslu. Samverkamaður blaðamanna var eiginkona skipstjórans sem glímir við alvarleg andleg veikindi. RÚV birti ekkert úr síma skipstjórans, lét Stundina og Kjarnann um það.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðafélags Íslands var í ítarlegu viðtali á Vísium stöðu blaðamennsku hér á landi. Um byrlunar og símamálið sagði formaður stéttafélags blaðamanna:
Svo náttúrlega Samherjamálið sjálft og hvernig blaðamenn þurftu að líða fyrir það að lögregla var í einhverju samkrulli með einhverjum hagsmunaaðilum þar um að þagga niður umfjöllun um eitthvað sem einhverjum þykir óþægilegt. Allt er þetta svo stórkostlega furðulegt. (feitletr. pv)
Innræti Sigríðar Daggar birtist í nafngjöfinni ,,Samherjamálið“. Samherji átti enga aðkomu að byrlunar- og símamálinu. Páll skipstjóri starfaði hjá Samherja vorið 2021, þegar honum var byrlað, og hafði skrifað greinar í fjölmiðla til varnar vinnuveitanda sínum. Blaðamenn á þrem fjölmiðlum RÚV, Stundinni og Kjarnanum (nú Heimildin) töldu skipstjórann lögmætt skotmark. Úr efnivið úr síma skipstjórans, spjall við vinnufélaga, skálduðu blaðamenn ,,skæruliðadeild Samherja“ með Pál skipstjóra sem foringja. Sjómaður að norðan er síðan myllusteinn um háls blaðamannastéttarinnar.
Formaður BÍ vill ekki kenna málið við Pál skipstjóra eða byrlun- og símastuld. Ástæðan er fæstir myndu trúa að norðlenskur sjómaður stjórnaði heilu lögregluembætti. Betra að selja almenningi þá sögu að Samherji ráði ferðinni. Lögreglurannsókn sem hófst sumarið 2021 var hætt fyrir tveim árum. Í yfirlýsingulögreglu kemur fram að blaðamenn frömdu afbrot í byrlunar- og símamálinu, en ekki hafi enn tekist að sýna fram á með óyggjandi hætti hvaða blaðamenn brutu lög. Málið var ekki fellt niður, en rannsókn hætt.
Eftir að fjórir blaðamenn urðu sakborningar í lögreglurannsókn, í febrúar 2022, ákvað Blaðamannafélagið undir forystu Sigríðar Daggar að veita þrem þeirra verðlaun fyrir að eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun, stuldi og ólöglegri afritun einkasíma. Blaðamannafélagið tók afstöðu á rannsóknarstigi að blaðamenn væru saklausir, hefðu ekkert brotið af sér, hvorki í skilningi laga né siðareglna. Á meðan blaðamenn voru sakborningar felldu þeir úr gildi siðareglu sem sagði: Blaðamaður ,,forðast allt, sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu.“ Misnotkun á andlega veikum fellur undir regluna sem Blaðamannafélag Íslands afmáði úr siðareglum. Maðurinn sem stóð fyrir endurskoðun siðareglnanna er Aðalsteinn Kjartansson varaformaður BÍ og einn sakborninga.
Alvarlegt er fyrir blaðamannastéttina að formaður fagfélags þeirra haldi ítrekað fram að lögreglan í landinu sé undir hælnum á ,,einhverjum hagsmunaaðilum.“ Í viðtalinu á Vísi um helgina ítrekar Sigríður Dögg ásakanir um spillingu innan lögreglunnar. Fyrir þrem árum viðhafði formaður BÍ efnislega sömu ummæli í fagriti danskra blaðamanna, Journalisten.
Það er ekki hægt að túlka þetta á annan veg en sem óeðlileg afskipti lögreglu af blaðamönnum. Þar fyrir utan torvelda afskipti lögreglu að blaðmenn afhjúpi önnur mál og heftir þar með störf þeirra.
(Det kan kun tolkes som en urimelig indblanding i journalisternes arbejde fra politiets side. Desuden forsinker det journalisterne i at udføre andre afsløringer i mellemtiden, og det virker derfor hæmmende for deres arbejde.)
Síðast í vor hjó Sigríður Dögg enn og aftur í sama knérunn. Í viðtali á RÚV sagði formaðurinn:
Við sjáum nú hvernig lögreglan tók þátt í þessari herferð [rannsókn á byrlunar- og símamálinu] með bara mjög skammarlegum og bara óafsakanlegum hætti.
Myndin sem Sigríður Dögg dregur upp, hvorutveggja á innlendum vettvangi og erlendum, af spillingu innan lögreglunnar gerir hún í nafni íslensku blaðamannstéttarinnar. Á meðan engir starfandi blaðamanna stíga fram og andmæla orðum Sigríðar Daggar er sú ályktun nærtæk að blaðamenn séu upp til hópa sannfærðir um að íslenska lögreglan sé gerspillt.
Vaknar þá spurningin: hvers vegna eru ekki fleiri fréttir af meintri spillingu innan lögreglunnar? Eða er það svo að blaðamenn telja lögregluna aðeins spillta þegar hún rannsakar aðild blaðamanna að alvarlegum lögbrotum s.s. byrlun, símastuldi og ólöglegri afritun einkasíma?
Í viðtalinu á Vísi, raunar við þrautreyndan blaðamann, Jakob Bjarnar, verður Sigríði Dögg tíðrætt um skort á trausti til blaðamanna. Hvers vegna skyldi almenningi finnast blaðmenn síðasta sort fagstétta?