Mynd og ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafa verið sett á risaskilti í Teheran í Íran sem hluti af opinberri áróðursherferð gegn Ísrael. Borgarstofnun í írönsku höfuðborginni kynnti herferðina 30. september, nokkrum dögum fyrir heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands í dag.
Samira, sem birtir færslur undir nafninu Samira Iceland á Facebook, vekur athygli á málinu og birtir ljósmynd af skilti sem hún segir standa við Kurdistan hraðbrautina í Teheran. Hún spyr hvers vegna orð íslenska utanríkisráðherrans séu orðin gagnleg fyrir áróðursvél íslamska lýðveldisins.
Borgaryfirvöld kynntu herferðina sjálf
Notkun myndarinnar og ummælanna kemur fram í eigin tilkynningu stofnunar borgaryfirvalda í Teheran sem annast skiltaherferðir. Þar segir að mynd af utanríkisráðherra Íslands sé hluti af herferð undir yfirskriftinni „Rödd mannúðar“.
Á skiltinu eru ummæli ráðherrans færð yfir á persnesku.
„Þið eruð hugleysingjarnir sem komið í veg fyrir mannúðaraðstoð.“
Í tilkynningunni segir að orðin hafi beinst að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels. Markmið herferðarinnar sé að styðja íbúa Gaza og fordæma það sem stofnunin kallar glæpi síonistastjórnarinnar.
Sama stofnun heiðraði leiðtoga Hizbollah
Daginn áður, 29. september, kynnti sama stofnun aðra skiltaherferð til að heiðra minningu Hassans Nasrallah, fyrrverandi leiðtoga Hizbollah.
Þar segir að markmiðið sé að halda minningu „píslarvotta andspyrnunnar“ á lofti, miðla boðskap þeirra til nýrra kynslóða og leggja áherslu á að starfi þeirra verði haldið áfram.
Spyr hvers vegna orðin gagnist klerkastjórninni
Samira segir að ekki eigi að horfa fram hjá pólitískri þýðingu þess að ummæli íslensks ráðherra séu valin og sett á risaskilti í írönsku höfuðborginni.
Hún bendir á stuðning írönsku stjórnvalda við vopnaða hópa á borð við Hamas, Hizbollah og Húta og spyr hvers vegna sömu stjórnvöld séu svo áhugasöm um að magna upp orð Þorgerðar.
„Hvers vegna eru orð utanríkisráðherra Íslands orðin svona gagnleg fyrir áróðursvél íslamska lýðveldisins?“ spyr hún.
Stuðningur Írans við þessa hópa kemur meðal annars fram í opinberum tilkynningum bandaríska fjármálaráðuneytisins, sem hefur lýst því hvernig olíutekjur íranskra stjórnvalda séu notaðar til að fjármagna starfsemi þeirra.
Orðin féllu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
Þorgerður flutti ávarp sitt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York 26. september. Þar notaði hún orðalagið „siðferðislegir hugleysingjar“ og sagði það eiga við leiðtoga sem neituðu að semja um sanngjarnan og varanlegan frið, hindruðu aðgang að mannúðaraðstoð eða virtu alþjóðalög að vettugi.
Hún lagði jafnframt áherslu á tveggja ríkja lausn, þar sem palestínskt ríki og Ísrael gætu lifað hlið við hlið í öryggi og friði. Í sama ávarpi nefndi hún einnig mannréttindastarf Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna vegna Írans og Afganistans.
Rubio kemur til Íslands í dag
Heimsókn Rubio til Íslands er fyrirhuguð í dag, mánudaginn 5. október. Hann þáði heimboð Þorgerðar, sem hún ítrekaði þegar þau hittust í New York í tengslum við allsherjarþingið.
Samkvæmt utanríkisráðuneytinu vega varnarmál, öryggi á norðurslóðum og viðskipti þyngst í samtali ríkjanna.
„Samstarf Íslands og Bandaríkjanna stendur á traustum grunni,“ sagði Þorgerður þegar heimsóknin var tilkynnt 1. október.