Einelti meðal yngri grunnskólanemenda hefur aukist ár frá ári undanfarin ár. Nú segjast 22 prósent nemenda í 4. og 5. bekk hafa orðið fyrir einelti, samanborið við 18 prósent árið 2023.Þetta kemur fram í nýjum niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ), sem lögð var fyrir nemendur í 4.–10. bekk í grunnskólum landsins í vor. Alls tók 23.881 nemandi úr 153 grunnskólum þátt í rannsókninni.
Einelti eykst meðal yngstu nemenda – Reykingar tvöfaldast hjá þeim elstu