Stjórn VR ætlar í kvöld að óska eftir heimild til að segja upp kjarasamningum ef ekkert breytist í samskiptum þeirra og Samtaka atvinnulífsins á næstunni. Fagfélögin munu óska eftir sambærilegri heimild frá sínu baklandi.
Trúnaðarráð VR hefur verið boðað saman til fundar klukkan 17:30 til að ræða stöðuna í kjaramálum. Ráðið er stjórn VR til ráðgjafar. Hún kemur saman að loknum fundi trúnaðarráðsins og tekur þá afstöðu til þess hvort heimild verði veitt til að segja kjarasamningum upp.
Forysta VR hefur krafist þess að sínir félagsmenn fái það bætt í kjarasamningum að almennar hækkanir samkvæmt kjarasamningum hafi verið undir verðbólgu síðustu tvö ár. Þessu hefur forysta Samtaka atvinnulífsins hafnað. VR hefur krafist launahækkana eða nýrra forsenduákvæða svo hægt sé að taka upp samninginn áður en hann rennur út.
Í tilkynningu á vef VR er haft eftir Höllu Gunnarsdóttur, formanni samtakanna, að SA hafi skilað algjörlega auðu. „Við það verður ekki unað. Því vakna spurningar um hvort SA vilji í raun og veru að kjarasamningar haldi, að minnsta kosti hafa þau ekki sýnt neinn samningsvilja eða yfirleitt mætt með lausnamiðað hugarfar.“
Forsenduákvæði kjarasamninga brast þegar verðbólga var yfir 4,7% í september. Hægt er að segja þeim upp fram á fimmtudag. Miðað við tilkynninguna á vef VR gæti heimild til þess fengist í kvöld.
Fréttin hefur verið uppfærð og bætt við upplýsingum um fagfélögin.