Lögreglu bárust rúmlega fjórðungi fleiri tilkynningar um kynferðisbrot fyrstu sex mánuði ársins en á fyrri hluta árs í fyrra. Ef litið er til meðaltals síðustu þriggja ára fjölgaði kynferðisbrotum um rúmlega fimmtung á fyrri helmingi ársins.
Konur eru 85% brotaþola og 49% voru undir 18 ára aldri. Karlar voru 92% grunaðra.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra.
Alls voru 346 kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu fyrri hluta árs, það eru nærri tvö brot á dag að meðaltali.
103 nauðganir voru tilkynntar til lögreglu fyrri hluta árs, einni færri en á sama tíma í fyrra. Það er þó fjölgun frá árunum þar á undan.
Talsverð fjölgun er í tilkynningum um brot í tveimur öðrum brotaflokkum. Annar er kynferðisleg áreitni og stafræn kynferðisbrot sem fjölgaði úr 58 í 93 milli ára. Vændismálum hefur líka fjölgað. Fjögur slík voru tilkynnt fyrri hluta árs 2022, 21 í fyrra og 33 fyrstu sex mánuði þessa árs.