Um 60 mótmælendur voru handteknir í Moskvu í gær þegar um 2.000 manns komu saman á vegum Kommúnistaflokks landsins. Í fyrstu var efnt til samkomu til minningar um þá sem voru drepnir 4. október 1993 þegar þáverandi forseti Boris Jeltsín fyrirskipaði að skotið yrði á þinghús landsins. Samkoman í gær þróaðist í mótmæli og fólk lét í ljós vanþóknun á framkvæmd þingkosninga á dögunum og óánægju með stjórnvöld.
Talið er að um 2.000 manns hafi mætt á viðburðinn sem er árlegur. Rússneskir fjölmiðlar greina frá því að fólk hafi hrópað slagorð og kallað eftir lausn pólitískra fanga og frjálsum kosningum. Hluti hinna handteknu var látinn laus í gærkvöld.
Þingkosningar voru í Rússlandi 18. til 20. september. Eftir þær lýstu yfirvöld því yfir að flokkur Pútíns forseta, Sameinað Rússland, hefði fengið flest atkvæði. Flokkar sem hafa mótmælt stríðsrekstri í Úkraínu fengu ekki að bjóða fram. Kommúnistaflokkurinn var einn fárra flokka í framboði. Flokkurinn hlaut þó færri atkvæði en í síðustu kosningum, samkvæmt talningu yfirvalda.
Mótmæli hafa verið afar sjaldgæf í Rússlandi í seinni tíð. Lögregla hefur barið þau niður af hörku og handtekið mótmælendur. Þá getur fólk sem lætur í ljós andstöðu við stjórnvöld búist við löngum fangelsisdómum.