„Við höfum bara ekki gefið eitt né neitt út um þetta mál heilt yfir,“ segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er DV spurði hvort krafist yrði gæsluvarðhalds yfir íslenskum athafnamanni sem samkvæmt frétt RÚV var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gærkvöld í tengslum við rannsókn á umfangsmiklu máli sem varðar fíkniefnalagabrot og peningaþvætti.
Lögregla tjáir sig ekki um handtöku athafnamannsins – „Sjáum til þegar líður á daginn“