Alvotech hefur fengið samþykktan viðauka við markaðsleyfi á Bandaríkjamarkaði fyrir AVT02, sem er hliðstæða við Humira-líftæknilyfið. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að þetta samþykki Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna þýði að hægt sé að tvöfalda framleiðsluna fyrir Bandaríkjamarkað í aðstöðu fyrirtækisins í Reykjavík.
Framleiðslueiningin í Reykjavík hefur því bæði hlotið samþykki Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna og Lyfjastofnunar Evrópu.