Sömuleiðis verður rigning suðaustanlands framan af degi en síðan úrkomulítið. Á Norðausturlandi verður rigningin nærri sjávarmáli en slydda eða snjókoma til fjalla.
Hitinn á landinu verður frá einu stigi í innsveitum á Norðausturlandi upp í átta stig syðst á landinu. Í kvöld verður hægari vindur og tekur að kólna, víða verður frost í nótt.
Á morgun verður hæg breytileg átt og yfirleitt þurrt og bjart veður. Hitinn fer mest upp í átta stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Hæg breytileg átt. Víða þurrt og bjart veður, en stöku skúrir við suðurströndina. Hiti 3 til 8 stig yfir daginn, en allvíða næturfrost.
Á miðvikudag:
Hæg suðlæg eða breytileg átt. Léttskýjað norðaustan- og austanlands, annars skúrir eða slydduél. Þurrt að mestu um kvöldið. Hiti 2 til 7 stig að deginum.
Á fimmtudag:
Allhvöss eða hvöss suðaustanátt með rigningu, talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu. Mun hægari suðvestlæg átt og skúrir á Suður- og Vesturlandi um kvöldið. Hiti 3 til 9 stig.
Á föstudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt. Víða rigning, en úrkomulítið sunnanlands. Hiti 3 til 8 stig.
Á laugardag:
Norðanátt með súld eða rigningu, en bjartviðri á sunnanverðu landinu. Hiti 3 til 10 stig, mildast syðst.
Á sunnudag:
Austlæg átt og rigning við suðurströndina, annars úrkomulítið. Hiti víða 3 til 8 stig.