Yfirkjörstjórn í Brasilíu hefur staðfest að efnt verður til síðari umferðar forsetakosninga sunnudaginn 25. október. Hægrimaðurinn Flávio Bolsonaro, frambjóðandi Frjálslynda flokksins, hlaut rúm 47 prósent atkvæða gegn rúmum 45 prósentum sitjandi forseta, Luiz Inácio Lula da Silva.
Hann er leiðtogi Verkamannaflokksins. Aðrir frambjóðendur fengu langt undir tíu af hundraði. Um tíma meðan á talningu stóð hafði Bolsonaro náð rúmum helmingi atkvæða, sem þarf til að komast hjá síðari umferð.
Hægri öflin í Brasilíu unnu stórsigra í þingkosningum sem haldnar voru samhliða forsetakosningunum.
Það er mikið áfall fyrir vinstrimanninn Lula, sem vill tryggja sér fjórða kjörtímabilið á forsetastóli til að festa arfleifð sína í sessi. Auk þess voru nokkrir öldungadeildarþingmenn kjörnir og fylkisstjórar.
Flávio Bolsonaro er öldungadeildarþingmaður og var fremur lítt þekktur uns faðir hans Jair Bolsonaro, fangelsaður fyrrverandi forseti, krýndi hann pólitískan arftaka sinn. Meðan á kosningabaráttunni stóð var upplýst að Bolsonaro yngri sætti rannsókn vegna fjármálamisferlis tengdu gerð heimildarmyndar um Bolsonaro eldri.
Það virðist ekki hafa haft mikil áhrif á kjósendur. Hafi Bolsonaro betur í síðari umferðinni bætist Brasilía í stækkandi hóp ríkja Rómönsku Ameríku þar sem hægrisinnaðir frambjóðendur hafa náð kjöri. Lula hefur sagt fullveldi Brasilíu í húfi vegna þrýstings frá Donald Trump Bandaríkjaforseta.