Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft í nægu að snúast við að hafa hendur í hári ökufanta. Ökumenn hafa verið stöðvaðir fyrir ýmis brot eins og hraðakstur, akstur undir áhrifum og að aka yfir á rauðu ljósi.
Sex ökumenn sem voru stöðvaðir við akstur í dag reyndust vera undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá voru fjórir ökumenn stöðvaðir fyrir að aka gegn rauðu ljósi og aðrir fjórir fyrir að aka á göngugötu.
Til viðbótar var einn ökumaður stöðvaður þar sem pera í framljósi hafði gefið sig og minntur á að huga að ljósabúnaði. Annar hafði of marga farþega. Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir fyrir að nota farsíma undir stýri og sektaðir.