Auka næringarlæsi þjóðarinnar
Hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir hafa gert íslenskt smáforrit sem hjálpar fólki að fylgjast með næringunni. Ingi segir að oft sé þetta ekki aðeins spurning um hvað sé borðað heldur einnig að átta sig á hversu mikið hver og einn getur borðað til að ná hámarksárangri á sama tíma.
Hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir hafa sett á fót smáforritið Lifetrack, sem gerir notendum kleift að fylgjast með næringu sinni með lágmarks fyrirhöfn. Þau hjón hafa í mörg ár tileinkað sér mataræði sem byggir á réttu hlutfalli næringar og hafa síðastliðin ár aðstoðað aðra við að bæta sinn lífsstíl.
Ingi segir að þau hafi fundið ákall um einfalt smáforrit á íslensku, en nóg er af erlendum forritum sem snúast um þetta. Hann segir að þau hafi byggt á sinni reynslu, en þau eru bæði markþjálfar og heilsufrumkvöðlar, auk þess sem þau hafa fengið upplýsingar og ráðgjöf frá íþróttafræðingum og sálfræðingum.
„Ég og konan mín ákváðum að fara í samstarf við Stefnu hugbúnaðarhús hér á Akureyri við hönnunina á þessu appi. Þetta snýst sem sagt um að skrásetja mat og appið reiknar svo út orkuþörf fyrir hvern og einn út frá þeim forsendum og aðstoðar fólk við að …