„Ég nota þetta mikið sjálf til að ná mínum núllpunkti í hversdeginum. Þetta er endurtekin hreyfing. Eitthvað sem maður þarf virkilega að einbeita sér að,“ segir Anna Karen Sigurðardóttir, eigandi prjónaverslunarinnar Maro.
Ekki miklar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum prjónamennsku á fólk. Þær niðurstöður sem þó liggja fyrir benda hins vegar til þess að handavinna sé róandi og geti jafnvel hjálpað fólki sem á við fíknihegðun að stríða.
Þetta kemur fram í umfjöllun breska ríkisútvarpsins. Þar segir að endurteknar handahreyfingar, líkt og við hannyrðir, geti róað parasympatíska taugakerfið, svokallað sefkerfi.
Hjálpar fólki í gegnum erfiðar lífsreynslur
Anna Karen segir marga viðskiptavini sína lýsa því að prjónaskapur hjálpi þeim við að takast á við erfiðar lífsreynslur, til dæmis krabbameinsmeðferð eða aðra langvinna sjúkdóma.
„Þær tala mikið um þetta – að nýta sér prjónaskapinn til þess að ná þessari ró í hugann.“
Anna Karen segist heyra það sama frá yngri konum sem eru gjarnan með lítil börn.
„Sem getur verið mikið og erfitt hlutverk. Þær nýta sér oft prjónaskapinn til að setjast niður og jafnvel til að leyfa börnunum að leika sér meðan þær ná nokkrum lykkjum og smá ró.“
Sjálf telur hún að allar stundir þar sem fólk sest niður og fær hlé frá áreitinu allt um kring séu jákvæðar. „Prjónaskapurinn er vissulega þar.“