Kaup Umhverfis- og orkustofnunar á byssu sem skimar fyrir skaðlegum efnum hafa tafist vegna óvissu um áhrif röntgengeisla sem byssan gefur frá sér við notkun.
Umhverfis- og orkustofnun hefur unnið að því í rúmt ár að innleiða nýtt mælitæki, svokallaða XRF-byssu. Byssan er hugsuð til að auðvelda eftirlit með skaðlegum efnum í vörum sem keyptar eru í gegnum netmarkaðstorg, til dæmis Shein og Temu.
XRF-tæki, eins og byssan sem stendur til að kaupa, nota röntgengeisla við mælingar. Dæmi er um að stofnanir í nágrannaríkjum hafi valið aðrar útgáfur af tækjunum heldur en byssuna vegna regla um notkun slíks búnaðar.
„Við þurfum því að staðfesta hjá Geislavörnum ríkisins hvernig er best að standa að þessu áður en tækið er keypt,“ segir Ísak Sigurjón Bragason, teymisstjóri efnamála hjá Umhverfis- og orkustofnun.
Áskoranir í heimi hraðtísku
Innleiðing byssunnar er hluti af viðbragði við umræðu um hraðtísku sem hefur færst í aukana undanfarið. Stjórnvöld í Frakklandi hafa til að mynda skorið upp herör gegn hraðtísku með því að leggja aukagjald á flíkur frá Shein, Temu og AliExpress.
Í nýlegri norrænni rannsókn kemur fram að um 70% vara sem keyptar eru í gegnum netverslanir á borð við Temu og Shein innihalda skaðleg efni sem bönnuð eru innan EES-landa.
Fleiri rannsóknir hafa sýnt að mun meira magn eiturefna finnst í fatnaði frá Shein en er leyfilegt í textíl, samkvæmt Evrópulöggjöf. Kanadískar rannsóknir á fatnaði frá Shein gáfu til kynna eiturefni langt yfir meðmælum landlæknis þar. Þetta eru efni á borð við blý, PFAS og þalöt.
Ekki er hægt að tryggja að föt sem keypt eru utan Evrópumarkaðs, eins og Shein, séu eiturefnalaus. Blý og önnur eiturefni í fatnaðinum geta haft alvarleg áhrif á innkirtla- og hormónastarfsemi þeirra sem klæðast fötunum.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir það óviðunandi að hluti vara sem eru til sölu á netmarkaðstorgum uppfylli ekki kröfur sem gerðar eru til vöruöryggis.
Ísland leiðir samnorrænt verkefni þar sem sérstök áhersla verður lögð á að taka á þeim áskorunum sem fylgja mikilli aukningu á viðskiptum við netmarkaðstorg og netverslanir sem þessar. Fjöldi sendinga hefur þrefaldast frá 2022 og samkvæmt nýjustu tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar kemur um þriðjungur netverslunar frá Kína.
Frumvarp um markaðseftirlit á þingmálaskrá
Meðal aðgerða sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til er að stofna samráðshóp um netverslun. Hann tók til starfa í júní í fyrra og er markmið hans að taka á áskorunum sem fylgja netverslun frá þriðja ríki.
Í hópnum, sem fundar á um þriggja mánaða fresti, eru fulltrúar frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, atvinnuvegaráðuneytinu, Umhverfis- og orkustofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtökum verslunar og þjónustu, Skattinum, Neytendasamtökunum og Neytendastofu. Hópurinn á ekki að skila ráðherra tillögum heldur er verkefni hans viðvarandi.
Meðal aðgerða sem eru í bígerð er úttekt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar á lögmæti merkinga á vörum frá Temu og öðrum stórum netmarkaðstorgum.
Þá gerir þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar ráð fyrir því að atvinnuvegaráðherra leggi fram frumvarp í þessum mánuði um markaðseftirlit sem er meðal annars ætlað að styrkja neytendavernd vegna varnings sem er keyptur yfir netið.