Var það sjómaður sem kom fyrstur auga á og gerði lögreglunni viðvart um málmhlut undan strönd Helsinki í gær, laugardaginn 3. október, en það var á fjölfarinni siglingaleið farþegaskipa. Mikill viðbúnaður var í kjölfarið á svæðinu en nú er ljóst að málmhluturinn virðist skaðlaus, er fram kemur í umfjöllun finnska ríkisútvarpsins (YLE) um málið.
Að sögn lögreglu hafi hluturinn sem fannst verið nokkuð þungur, flotið um í vatninu og verið um 40 sentímetrar að lengd. Haft er eftir lögreglunni að hluturinn hafi verið dreginn á land í gærkvöldi á eyjuna Santahamina austan við höfuðborgina.
Klukkan 19:20 á laugardagskvöld fékk lögreglan tilkynningu frá strandgæslunni um trektlaga málmhlut í vatninu suður af Kustaanmiekka-sundi.
Lögreglan hefur óskað eftir opinberri aðstoð frá sjóhernum til að bera kennsl á hlutinn. Lögreglufulltrúinn Esa Pennanen hjá lögreglunni í Helsinki segir að hluturinn hafi verið dreginn á land á eyjunni Santahamina austur af höfuðborginni. Hafsvæðið þar sem hluturinn fannst hefur verið opnað aftur.