Maðurinn var handtekinn þegar hann kom með flugi frá Portúgal. Lögreglan ætlaði að handtaka hann í aðgerðunum í september en hann var þá erlendis.
Öllum sautján sleppt
Sautján manns voru handteknir vegna málsins 22. september. Sex þeirra sátu í gæsluvarðhaldi. Öllum sautján hefur síðan verið sleppt úr haldi vegna málsins og síðustu tveir voru látnir lausir á föstudag.
Lögreglan sagði þá að ekki væri lengur talin þörf á gæsluvarðhaldi yfir þeim vegna rannsóknarinnar. Rannsóknin héldi þó áfram. Ágætlega hefði gengið að safna gögnum en málið væri umfangsmikið og það tæki tíma að rannsaka það.
Hald lagt á peninga og fíkniefni
Lögreglan hefur gert húsleit á nokkrum stöðum og lagt hald á peninga, fíkniefni og aðra muni. Rannsóknin beinist að sölu og dreifingu fíkniefna og peningaþvætti.
Meðal þeirra sem voru handteknir í september var framkvæmdastjóri hjá bílaumboðinu BL. Hann var settur í tímabundið leyfi frá störfum. BL sagði fyrirtækið sjálft ekki eiga aðkomu að málinu og að það myndi aðstoða lögregluna eftir þörfum.