Zelensky Úkraínuforseti segir Rússlandsher ábyrgan fyrir drónaárás á skip á Svartahafi, nálægt Rúmeníu, í morgun. Tveir biðu bana í árásinni og ellefu var bjargað. Skipið sökk eftir árásina.
„Skelfileg árás tveggja rússneskra dróna á borgaralegt skip að flytja korn á hlutlausu hafsvæði,“ skrifaði Zelensky í færslu á samfélagsmiðlinum X. Þá sagði hann að í áhöfn skipsins hefðu verið Aserar og Indverjar.
Samkvæmt rúmenskum fjölmiðlum sigldi skipið undir fána Sankti Kitts og Nevis og var á leið frá Izmail í Úkraínu til Ravenna á Ítalíu.