Þremenningar hljóta Nóbelsverðlaun fyrir ljóserfðafræði
Bandaríski vísindamaðurinn Karl Deisseroth og þýsku vísindamennirnir Peter Hegemann og Georg Nagel deila Nóbelsverðlaununum í lífeðlisfræði eða læknisfræði árið 2026 fyrir uppgötvanir sínar á ljósstýrðum jónagöngum og sviði ljóserfðafræði.
Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár fá bandaríski geð- og taugalæknirinn Karl Deisseroth og þýsku vísindamennirnir Peter Hegemann og Georg Nagel fyrir brautryðjendastarf á sviði ljóserfðafræði.
Með ljóserfðafræði er hægt að stýra taugaboðum með ljósi. Hún hjálpar vísindafólki að skilja hvernig tilteknar frumugerðir hafa áhrif á atferli á borð við nám, ótta, fíkn og hreyfingu.
Þremenningarnir hlutu verðlaunin „fyrir uppgötvun sína á sameindarofa fyrir taugafrumur“, sagði Nóbelsnefndin þegar tilkynnt var um verðlaunahafana í dag.
Með ljósi getur vísindafólk nú kveikt eða slökkt á einstökum taugarásum í heila. Þannig hefur því tekist að kortleggja taugarásir sem stýra tilteknum minningum, tilfinningum og atferli sem skipta máli fyrir tauga- og geðsjúkdóma.
Í læknisfræði er aðferðin notuð í tilraunum til að endurheimta sjón fólks með sjónskerðingu og gæti síðar leitt til meðferða við sjúkdómum á borð við Parkinsonsveiki og flogaveiki.
„Ljóserfðafræði gefur okkur möguleika á að kortleggja heilann með hætti sem okkur gat eitt …