Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútu­vog - Vísir

Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútu­vog - Vísir

Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútu­vog - Vísir

Þær hvetja fólk sem er með verkefni í huga, stórt eða smátt, til að nýta tækifærið og koma við. Þar gefst gestum kostur á að ræða hugmyndir sínar við mæðgurnar, fá ráðleggingar um hvaða litir gætu hentað rýminu og fræðast um hvernig best sé að bera sig að við kalkmálun.

„Það er alltaf mjög gagnlegt að hafa með sér myndir af rýminu. Við mælum líka gjarnan með að velja tvo til þrjá litatóna og taka sýnishorn með heim, því litirnir sjást alltaf best í birtunni og umhverfinu þar sem á að nota þá,“ segir Fanný.

Þær mæðgur ættu að hafa úr nógu að moða þegar kemur að ráðleggingum um kalkmálningu. Kalklitir eiga sér tuttugu ára sögu, vörurnar eru seldar víða um heim og fyrirtækið hefur komið að verkefnum allt frá nútímalegum íbúðum í Asíu til gamalla halla í Frakklandi. Sjálfar reka þær fyrirtækið frá Belgíu, þar sem þær hafa komið sér fyrir í umhverfi sem fellur vel að fagurheimi Kalklita.

Hugmyndin kviknaði á Akureyri

Saga Kalklita hófst þó ekki í Belgíu heldur á Akureyri árið 2006. Framleiðslan hófst tveimur árum síðar en áhugi Auðar á kalki og náttúrulegum efnum nær mun lengra aftur.

Fyrir um þrjátíu árum nam hún skreytilist og gamla málningartækni í Danmörku. Þar kynntist hún kalkmálningu sem þá var meðal annars blönduð með dýralími og notuð á veggi og loft. „Ég heillaðist strax af þessu matta og náttúrulega efni,“ segir Auður.

Áhuginn jókst enn frekar árið 2003 þegar hún tók þátt í endurgerð á gömlu húsi í Amsterdam. Þar voru eingöngu notuð náttúruleg efni á borð við leir og kalk. „Þar opnuðust augu mín enn frekar fyrir frábærum eiginleikum þessara efna. Síðan þá hefur þetta verið mín ástríða og fjölskyldan hefur svo hrifist með.“

Í dag eru Kalklitir fjölskyldufyrirtæki og fleiri fjölskyldumeðlimir koma að rekstrinum. Auður og Fanný hafa sjálfar unnið saman í tæpan áratug og segja samstarfið ganga einstaklega vel.

Þær eru líkar þegar kemur að smekk, stíl og áhugamálum en bakgrunnur þeirra er ólíkur. Á meðan Auður kemur úr skreytilist og gamalli málningartækni er Fanný með meistaragráður í evrópskum viðskiptarétti og stjórnun. „Við erum búnar að vinna saman í næstum tíu ár og okkur þykir ekkert betra,“ segir Fanný.

Belgísk áhrif mæta norrænum léttleika

Belgía hefur reynst góður staður fyrir alþjóðlegt fyrirtæki á borð við Kalkliti, enda liggur landið vel við þegar kemur að útflutningi. Kalklitir eru nú sendir þaðan til viðskiptavina víða um heim.

En áhrif Belgíu eru ekki eingöngu praktísk. Þau má einnig sjá í fagurfræði fyrirtækisins.

Belgísk innanhússhönnun er gjarnan tengd náttúrulegum efnum, hráum viði, blásteini, hör og antík. Auður hefur auk þess verið mikill aðdáandi belgíska innanhússhönnuðarins Axel Vervoordt í meira en þrjátíu ár.

„Þessi áhrif blandast svo við okkar léttari norræna stíl. Við sækjum líka mikinn innblástur til Frakklands og höfum alltaf haft gaman af því að heimsækja antíkmarkaði og skoða gamlar byggingar,“ segir Auður.

Þessi blanda af gömlu og nýju, hráu og fáguðu, norrænu og suðrænu hefur orðið hluti af þeim auðþekkjanlega fagurheimi sem umlykur Kalkliti.

Frá upphafi hefur hugmyndafræðin meðal annars snúist um að gera fólki kleift að skapa falleg rými með náttúrulegri málningu án þess að verkefnið þurfi að vera flókið.

Kalkmálning Kalklita er framleidd og seld í duftformi og það var meðvituð ákvörðun frá upphafi. „Auður sá strax fyrir sér að konur, sem eru vanar að vinna með hráefni í duftformi, til dæmis í bakstri, myndu ekki upplifa þetta sem fyrirstöðu heldur einfaldan og eðlilegan hluta af ferlinu,“ segir Fanný.

Duftformið hefur einnig þann kost að ekki þarf að flytja vatn á milli landa. Fyrirtækið hlaut nýverið EU Ecolabel-vottun Evrópusambandsins, sem mæðgurnar segja falla vel að þeirri stefnu sem fylgt hefur verið frá upphafi.

Veggur sem breytist með birtunni

En hvað er það við kalkmálninguna sem hefur gert hana svona vinsæla?

Að sögn mæðgnanna liggur svarið ekki síst í yfirborðinu. Kalkmálaður veggur er ekki fullkomlega einsleitur. Hann er mattur, lifandi og breytist eftir því hvernig birtan fellur á hann.

„Þar sem litirnir eru sóttir úr náttúrunni eru þeir kunnuglegir fyrir augað og falla mjög vel að öðru í rýminu. Þeir eiga auðvelt með að vinna með gólfefnum, húsgögnum, textíl og öðrum efnum í umhverfinu,“ segir Auður.

Þegar sami litur er notaður á bæði veggi og loft getur útkoman orðið enn sterkari.

„Þá færist ákveðin ró yfir rýmið. Litaflæðið verður heildstætt og mjúkt og yfirborðið fær meiri dýpt og karakter. Það skapar hlýlegt, rólegt og afslappandi andrúmsloft.“

Og sá sem vill fullkomlega einsleitan vegg er kannski einmitt að missa af því sem gerir kalkið sérstakt.

Kalkmálning er handmáluð með bursta og engin pensilstroka verður nákvæmlega eins og sú næsta. Birtan leikur svo við áferðina yfir daginn. „Með tímanum fær yfirborðið enn meiri karakter og okkur finnst það einmitt hluti af fullkomnuninni,“ segir Fanný.

Frá Singapore til gamallar hallar í Frakklandi

Kalkmálning er stundum tengd við ákveðinn hráan eða minimalískan stíl en mæðgurnar segja notkunarmöguleikana mun fjölbreyttari. „Við sjáum kalkmálninguna okkar notaða í mjög ólíkum rýmum, allt frá glænýrri og nútímalegri íbúð í Singapore yfir í gamla höll í Frakklandi. Það sýnir vel hversu fjölbreytileg hún getur verið,“ segir Auður.

Litavalið skiptir þar miklu og birtan getur gjörbreytt því hvernig sami liturinn upplifist. Kalkmálaður veggur getur tekið á sig einn blæ í morgunsólinni og annan í kvöldbirtunni.

Það sem fyrir er í rýminu skiptir líka máli. Grátt gólfefni getur til dæmis dregið fram kaldari tóna í drapplituðum vegg.

Undanfarin ár hafa ljósir og mjúkir tónar verið sérstaklega vinsælir. „Það hefur klárlega verið ákveðin beige-sveifla um allan heim. Við sjáum mikið af mjög ljósum, mjúkum tónum og oft er sami litur valinn á bæði veggi og loft,“ segir Fanný.

Fólk virðist jafnframt sækja minna í miklar andstæður en áður og velja frekar fáa tóna úr sömu litapallettu.

Það þarf þó ekki að byrja á heilu rými. Einn kalkmálaður veggur getur breytt stemningunni verulega. „Margir byrja á einum vegg. Svo gerist það oft að fólk verður hrifið af áferðinni og endar á að kalkmála fleiri veggi eða jafnvel loftið líka,“ segir Auður.

Dökkur kalkmálaður veggur getur gefið rými aukna dýpt og karakter en ljósari tónn á veggjum og lofti getur skapað rólegra og heildstæðara yfirbragð.

Ekki bara fyrir stofuvegginn

Kalkið má líka nota á fleiri staði en margir gera sér grein fyrir. Mæðgurnar nefna sérstaklega votrými. Kalkmálning er basísk og með hátt pH-gildi, sem gerir yfirborðið óhagstætt fyrir myglu. Málningin er jafnframt opin og leyfir veggjunum að anda.

Svo má færa leikinn yfir á smærri hluti. „Það er mjög skemmtilegt að nota kalkmálningu á húsgögn, myndaramma, blómapotta og ýmsa skrautmuni. Við höfum sjálfar gefið bæði gömlum og nýjum hlutum breytt og nýtt útlit með kalkmálningu,“ segir Fanný.

Þar skiptir undirbúningurinn þó miklu máli.

Treystu ferlinu

Þeir sem hafa eytt dágóðum tíma í að skoða kalkmálaða veggi á Pinterest og Instagram þekkja eflaust tilfinninguna: Þetta er afskaplega fallegt en ég get örugglega ekki gert þetta sjálf.

Mæðgurnar segja það algengan misskilning. „Þetta er einfaldara en flestir halda. Kalkduftinu er einfaldlega blandað saman við vatn og málningin síðan borin á með bursta,“ segir Auður.

Þær mæla með tveimur umferðum og mikilvægt er að klára allan flötinn í einu.

Algengustu mistök byrjenda eru einmitt að fara aftur yfir litla bletti eftir að málningin er farin að þorna. Ný pensilstroka á hálfþurru yfirborði getur þornað öðruvísi og orðið ljósari en svæðið í kring. Best er því að vinna samfellt og standast freistinguna að fara aftur og laga það sem augað telur ófullkomið á meðan verkið er enn í vinnslu.

Og svo þarf smá þolinmæði.

„Treystu ferlinu!“ segir Fanný. „Kalkmálningin er töluvert dekkri þegar hún er blaut en hún þornar í sinn rétta lit. Það er líka mikill munur á fyrstu og annarri umferð. Ekki dæma útkomuna fyrr en báðar umferðirnar eru komnar á og veggurinn er orðinn alveg þurr.“

Það má heldur ekki ofhugsa pensilstrokurnar. „Það er í raun engin ein rétt eða röng leið. Við sjáum oft mjög frjálslegar málningaraðferðir sem koma mjög vel út,“ segir Auður.

Þeir sem vilja hins vegar fara „eftir bókinni“ geta málað upp og niður eða notað svokallaða kriss-kross-aðferð, sem er vinsæl leið til að ná fram einkennandi áferð.

H&M Home, Husdrömmar og villa í Taívan

Á tveimur áratugum hafa Kalklitir ratað inn í ótal verkefni víða um heim.

Mæðgurnar eiga erfitt með að velja eitt uppáhaldsverkefni en eitt af stóru augnablikunum var þegar H&M Home valdi Kalkliti til kynningar þegar fyrirtækið opnaði concept-verslanir sínar í helstu borgum Evrópu.

Þær hafa einnig unnið með sænska hönnuðinum Marie Olsson Nylander, sem margir Íslendingar þekkja úr þáttunum Husdrömmar. Kalklitir hafa meðal annars þróað sérblandaða liti fyrir hönnunarverkefni hennar og eigið heimili í Svíþjóð.

Eitt nýjasta stóra verkefnið er svo einkavilla í miðhluta Taívans, skammt frá Sun Moon Lake, unnin í samstarfi við þekkta arkitektastofu.

Reyndar hefur velgengni Kalklita í Asíu komið mæðgunum nokkuð á óvart. „Við hefðum ekki endilega séð fyrir okkur í upphafi hversu vel vörumerkið og þessi náttúrulega áferð myndu falla að ólíkum menningarheimum og innanhússtílum þar,“ segir Fanný.

Í dag fást Kalklitir meðal annars í Suður-Kóreu, Singapúr, Taívan, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Japan.

Þrátt fyrir útrásina er sérstök ánægja með að vörurnar séu aftur fáanlegar hér á landi. „Okkur þykir sérstaklega vænt um samstarfið við Slippfélagið og að geta nú aftur boðið Kalkliti á Íslandi eftir nokkurra ára fjarveru,“ segir Auður.

Kaffibolli, hvítvínsglas og pensill

Draumarými Auðar er þegar nokkuð skýrt í huganum. Þar eru veggir, loft og jafnvel gólf kalkmáluð og áferðin fær að njóta sín til fulls.

Raunar segjast þær þegar komnar býsna nálægt draumnum í Belgíu. Vinnurými og skrifstofur fyrirtækisins eru á neðri hæð hússins en heimili Auðar og Hjartar á þeirri efri.

„En það er enginn skortur á nýjum hugmyndum og draumum hér á bæ,“ segir Fanný.

Og kannski er það einmitt boðskapurinn sem þær vilja koma til fólks þegar þær mæta í Slippfélagið í Skútuvogi föstudaginn 9. október milli kl. 14 og 18.

Komdu með mynd af rýminu, fáðu ráðleggingar, skoðaðu liti og áferð og taktu jafnvel nokkur sýnishorn með heim. Þar geturðu séð hvernig liturinn bregst við birtunni, gólfinu, húsgögnunum og öllu því sem fyrir er.

Og ef eina hindrunin er óttinn við að taka fyrstu pensilstrokuna?

Þá er ráð mæðgnanna einfalt. „Kýldu á það! Ekki ofhugsa þetta. Veldu lit sem þú elskar, fáðu þér kaffibolla eða hvítvínsglas og skelltu þér í gang. Sjón er sögu ríkari.“

Kalkmálun í nokkrum skrefum

1. Undirbúðu rýmið: Hvað þarf að þrífa, verja, teipa og laga?

Mikilvægt er að veggurinn sé hreinn og laus við fitu og óhreinindi. Færið húsgögn að minnsta kosti einn metra frá veggnum og teipið þar sem þess er þörf. Fyllið í naglagöt og sprungur áður en hafist er handa. Gott er að verja gólfið með málningarteppi eða sambærilegri vörn, þó kalkmálning sé auðveld að þrífa af gólfi með blautum klút á meðan hún er enn fersk.

2. Undirbúðu vegginn: Hvernig á undirlagið að vera og hvenær þarf grunn?

Ef veggurinn er hreinn og málaður með venjulegri vatnsbaseraðri málningu er yfirleitt hægt að kalkmála beint yfir hann, óháð því hvaða litur er undir. Ef spartla þarf í göt eða sprungur skal gera það fyrst og leyfa spartlinu að þorna vel.

Ef veggurinn hefur verið spartlaður að hluta mælum við með einni umferð af vatnsbaseruðum grunni frá Slippfélaginu yfir allan flötinn áður en kalkmálað er. Þannig verður upptaka undirlagsins jafnari og endanleg áferð fallegri.

3. Undirbúðu kalkið: Þarf að hræra? Hversu mikið? Eitthvað sem þarf sérstaklega að passa?

Setjið fyrst 1,7 lítra af vatni í fötu. Bætið síðan kalkduftinu hægt og rólega út í vatnið og hrærið vel, annaðhvort með handpísk eða handhrærivél. Gott er að hræra í um 10 mínútur, eða þar til blandan er alveg kekkjalaus. Hrærið síðan reglulega í fötunni á meðan málað er.

4. Fyrsta umferð: Hvaða pensill er notaður og hvernig eiga strokurnar að liggja?

Við mælum með penslunum frá Kalklitum sem fást í Slippfélaginu. Þeir eru framleiddir sérstaklega fyrir okkur á Ítalíu og eru með extra löng hár sem hjálpa til við að skapa fallega og lifandi áferð.

Hægt er að vinna með mismunandi tækni, en við mælum helst með annaðhvort upp-og-niður strokum eða frjálsri kriss-kross aðferð.

5. Leyfðu efninu að vinna: Hvað tekur fyrsta umferðin langan tíma að þorna og hvað á fólk ekki að gera á meðan?

Fyrsta umferðin þornar yfirleitt á um 3–5 klukkustundum, eftir hita og aðstæðum í rýminu. Gott er að líta á fyrstu umferðina sem grunn að þeirri seinni, því það er eftir seinni umferðina sem endanleg áferð og dýpt fara virkilega að koma í ljós.

Mikilvægt er að klára allan vegginn í einu og gera ekki hlé á miðjum fleti. Þegar kalkmálningin er farin að þorna skal forðast að fara aftur yfir einstaka bletti. Leyfið henni frekar að þorna alveg. Treystið ferlinu og njótið þess að sjá litinn breytast þegar hann þornar.

6. Önnur umferð: Hvernig byggjum við upp þessa einkennandi kalkáferð?

Tvær umferðir gera mjög mikinn mun. Eftir seinni umferðina koma dýptin, skuggarnir og litbrigðin mun betur í ljós og þessi einkennandi kalkáferð fær að njóta sín.

Það skemmtilega við Kalkliti er að hægt er að mála aftur og aftur yfir sama flötinn. Í stúdíóinu okkar eru til dæmis veggir sem hafa fengið að minnsta kosti tólf lög af mismunandi litum í gegnum árin.

7. Lokafrágangur: Hvenær er veggurinn tilbúinn? Þarf vörn eða yfirborðsmeðferð og í hvaða rýmum?

Þegar seinni umferðin hefur þornað er flöturinn í sjálfu sér tilbúinn. Kalkmálningin heldur þó áfram að harðna eftir á og því er gott að fara varlega með yfirborðið fyrstu dagana og forðast sérstaklega vatn og mikla snertingu. Kalkmálningin er Voc-free, lyktarlaus og fljót að þorna. Við þornun gufar eingöngu vatn upp, þannig að það er til dæmis hægt að kalkmála svefnherbergi yfir daginn og sofa þar um kvöldið.

Ef þörf er á meiri vörn er hægt að bera Top Coat frá Kalklitum yfir kalkmálninguna. Það getur hentað vel á álagssvæðum, til dæmis í eldhúsi, á gangi eða öðrum stöðum þar sem meiri hætta er á blettum. Top Coat er matt yfirborðsefni og hægt er að bera á 1–3 mjög þunnar umferðir eftir þörfum.

8. Umhirða: Hvernig þrífum við kalkmálaðan vegg og hvað gerum við ef hann rispast eða blettast?

Kalkmálning frá Kalklitum er unnin úr náttúrulegum hráefnum og inniheldur ekki plastbindiefni sem mynda filmu á yfirborðinu. Því er ekki hægt að þrífa óvarinn kalkmálaðan vegg með blautum klút og sápu.

Á svæðum þar sem meiri vörn er nauðsynleg er hægt að nota Top Coat. Fyrir þá sem vilja halda yfirborðinu óvörðu og eins náttúrulegu og mögulegt er — eins og við sjálf kjósum yfirleitt — er alltaf hægt að fríska upp á vegginn síðar með nýrri umferð af kalkmálningu.

Smávægilegar rispur eru oft hægt að laga með litlum pensli og örfáum strokum. Ef um fitu- eða olíubletti er að ræða þarf yfirleitt meiri viðgerð: pússa blettinn létt með fínum sandpappír, setja vatnsbaseraðan grunn yfir svæðið og kalkmála síðan aftur. Á ljósum litum og mjög litlum blettum getur stundum verið nóg að laga aðeins viðkomandi svæði, en annars gefur oft bestan árangur að setja eina ferska umferð yfir allan flötinn.

#bak #kalkliti #mæta #mæðgurnar #við


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262943001d/maedgurnar-a-bak-vid-kalkliti-maeta-i-skutu-vog

📰 Aðrar fréttir

Hverjum gagnast vælutalið?
📅 05.10.2026 👁️ 0
Hverjum gagnast vælutalið?
Hverjum gagnast vælutalið? Fréttin5. október 2026Björn Bjarnason, Innlent, StjórnarfarLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Að kalla gagnrýni væl s...
Tíu manns veitt sál­gæsla eftir bana­slysið - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Tíu manns veitt sál­gæsla eftir bana­slysið - Vísir
Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í slysinu sem varð rétt fyrir hádegi á Laugardag á þjóðvegi eitt á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl....
Litlu mátti muna fyrir Hrund og fjölskyldu þegar orlofsíbúð sprakk í Aþenu - „Þetta var einum degi frá því að vera við“
📅 05.10.2026 👁️ 0
Litlu mátti muna fyrir Hrund og fjölskyldu þegar orlofsíbúð sprakk í Aþenu - „Þetta var einum degi frá því að vera við“
Afreksíþróttakonan Hrund Scheving hélt í september til Grikklands til að keppa á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum. Hana óraði þó ekki fyrir ...
Ögur­stund í kjara­samninga­málum - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Ögur­stund í kjara­samninga­málum - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.  Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir ...
Nágrannar Úkraínu í ESB hafna nýrri beiðni frá Kænugarði
📅 05.10.2026 👁️ 0
Nágrannar Úkraínu í ESB hafna nýrri beiðni frá Kænugarði
Nágrannar Úkraínu í ESB hafna nýrri beiðni frá Kænugarði Fréttin5. október 2026InnlendarLeave a Comment Loftmynd af þurrvöruskipinu Razoni, sem flutti...
„Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Val­höll“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
„Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Val­höll“ - Vísir
„Ég staðfesti þetta. Davíðstíminn – sjálfstæð saga lands og leiðtoga. Þetta er 490 síðna bók, „ballanseruð“ frásögn af þessum valdatíma þar sem rauði ...
Flydubai co-pilot planned to crash plane into airport, reports suggest
📅 05.10.2026 👁️ 0
Flydubai co-pilot planned to crash plane into airport, reports suggest
The Omani national was a "lone wolf" extremist, according to the reports.
Byrlun, blaðamennska og ásakanir um spillta lögreglu
📅 05.10.2026 👁️ 0
Byrlun, blaðamennska og ásakanir um spillta lögreglu
Byrlun, blaðamennska og ásakanir um spillta lögreglu Fréttin5. október 2026Fjölmiðlar, InnlentLeave a Comment Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Jakob Bjar...
Ekki fleiri kynferðisbrot í fimm ár
📅 05.10.2026 👁️ 0
Ekki fleiri kynferðisbrot í fimm ár
Lögreglu bárust rúmlega fjórðungi fleiri tilkynningar um kynferðisbrot fyrstu sex mánuði ársins en á fyrri hluta árs í fyrra. Ef litið er til meðaltal...
Guð­mundur Péturs­son hlaut Gullnöglina - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Guð­mundur Péturs­son hlaut Gullnöglina - Vísir
Afhending verðlaunanna fór fram í salnum Ægi 220 í Hafnarfirði við hátíðlega athöfn á laugardag en Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður, gítarleikari ...
Jewish Greens chair says she could leave party over 'Zionism is racism' motion
📅 05.10.2026 👁️ 0
Jewish Greens chair says she could leave party over 'Zionism is racism' motion
The motion, which has divided senior party figures, backs a "single democratic Palestinian state in all of historic Palestine".
Ungmennum líður betur í skólanum og þau neyta síður áfengis
📅 05.10.2026 👁️ 0
Ungmennum líður betur í skólanum og þau neyta síður áfengis
Farsældarvísar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar gefa til kynna að fleiri grunnskólanemum líði vel í lífi og skóla en áður. Farsældarvísarnir eru hluti...
Aldraður læknir sparkaði í flug­freyju - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Aldraður læknir sparkaði í flug­freyju - Vísir
Í ákæru þess efnis, sem tekin verður til aðalmeðferðar á föstudaginn, segir að maðurinn sé ákærður fyrir líkamsárás og hótun með því að hafa veist að ...
Stofnun sem heiðrar leiðtoga Hizbollah setur Þorgerði Katrínu á áróðursskilti skilti í Íran rétt fyrir komu Marco Rubio
📅 05.10.2026 👁️ 0
Stofnun sem heiðrar leiðtoga Hizbollah setur Þorgerði Katrínu á áróðursskilti skilti í Íran rétt fyrir komu Marco Rubio
Mynd og ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafa verið sett á risaskilti í Teheran í Íran sem hluti af opinberri áróðursherferð ...
Alvotech hækkar í verði eftir viðbótarleyfi
📅 05.10.2026 👁️ 1
Alvotech hækkar í verði eftir viðbótarleyfi
Hlutabréf í Alvotech hafa hækkað um tæp sjö prósent í verði í dag. Fyrirtækið tilkynnti í morgun að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefði veit...
Þremenningar hljóta Nóbelsverðlaun fyrir ljóserfðafræði
📅 05.10.2026 👁️ 0
Þremenningar hljóta Nóbelsverðlaun fyrir ljóserfðafræði
Þremenningar hljóta Nóbelsverðlaun fyrir ljóserfðafræði Banda­ríski vís­inda­mað­ur­inn Karl Deiss­eroth og þýsku vís­inda­menn­irn­ir Peter Hegemann ...
Vikan á Instagram: „Önnur okkar bítur“
📅 05.10.2026 👁️ 1
Vikan á Instagram: „Önnur okkar bítur“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Einelti eykst meðal yngstu nemenda – Reykingar tvöfaldast hjá þeim elstu
📅 05.10.2026 👁️ 0
Einelti eykst meðal yngstu nemenda – Reykingar tvöfaldast hjá þeim elstu
Einelti meðal yngri grunnskólanemenda hefur aukist ár frá ári undanfarin ár. Nú segjast 22 prósent nemenda í 4. og 5. bekk hafa orðið fyrir einelti, s...
Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er al­gjör­lega á hvolfi“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er al­gjör­lega á hvolfi“ - Vísir
Dorrit var gestur Mörtu Maríu Winkel í hlaðvarpinu Marta María býður heim þar sem þær fóru um víðan völl og ræddu um æsku Dorritar, samband hennar og ...
Bandarískir og þýskir vísindamenn hljóta Nóbelsverðlaun í læknisfræði
📅 05.10.2026 👁️ 0
Bandarískir og þýskir vísindamenn hljóta Nóbelsverðlaun í læknisfræði
Bandaríski geð- og taugasjúkdómalæknirinn Karl Deisseroth og þýskir samstarfsmenn hans, Peter Hegemann og Georg Nagel, hlutu í dag Nóbelsverðlaun í læ...
Vill breyta um­deildum gatna­mótum - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Vill breyta um­deildum gatna­mótum - Vísir
Í fyrrasumar voru gerðar umfangsmiklar breytingar við fimm gatnamót Höfðabakka til að bæta umferðaröryggi og aðgengi vegfarenda. Meðal annars voru svo...
Trúnaðarráð og stjórn VR ræða uppsögn kjarasamninga í kvöld
📅 05.10.2026 👁️ 1
Trúnaðarráð og stjórn VR ræða uppsögn kjarasamninga í kvöld
Stjórn VR ætlar í kvöld að óska eftir heimild til að segja upp kjarasamningum ef ekkert breytist í samskiptum þeirra og Samtaka atvinnulífsins á næstu...
Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðarár sagt upp störfum
📅 05.10.2026 👁️ 0
Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðarár sagt upp störfum
Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðarár hefur verið sagt upp störfum. Hluti starfsfólksins fær starf hjá öðrum hótelum á vegum Íslandshótela.Davíð Torfi ...
Barns­faðir Gypsy Rose fannst látinn - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Barns­faðir Gypsy Rose fannst látinn - Vísir
Ken Urker átti 34 ára afmæli þann 1. október þegar hann fannst látinn á heimili sínu í Louisiana-fylki. Orsök andlátsins liggur ekki fyrir en Gypsy Ro...
„Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
„Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ - Vísir
Bókun 35 verður lögð fyrir Alþingi í vikunni í kjölfar þess að máli íslenska ríkisins var vísað til EFTA-dómstólsins. Rætt var við Sigríði og Pawel í ...
Nobel Prize 2026 awarded for showing how nerve cells shape feelings
📅 05.10.2026 👁️ 1
Nobel Prize 2026 awarded for showing how nerve cells shape feelings
US psychiatrist and neurologist Karl Deisseroth and his German colleagues Peter Hegemann and Georg Nagel have been awarded for their work.
Nobel Prize 2026 awarded for showing inner workings of the brain
📅 05.10.2026 👁️ 0
Nobel Prize 2026 awarded for showing inner workings of the brain
US psychiatrist and neurologist Karl Deisseroth and his German colleagues Peter Hegemann and Georg Nagel have been awarded for their work.
Sjaldséð mótmæli í Moskvu
📅 05.10.2026 👁️ 0
Sjaldséð mótmæli í Moskvu
Um 60 mótmælendur voru handteknir í Moskvu í gær þegar um 2.000 manns komu saman á vegum Kommúnistaflokks landsins. Í fyrstu var efnt til samkomu til ...
Ólafur bendir á sláandi mun á Íslandi og öðrum löndum – „Hver eru rökin?“
📅 05.10.2026 👁️ 1
Ólafur bendir á sláandi mun á Íslandi og öðrum löndum – „Hver eru rökin?“
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir háa skattlagningu á áfengi hér á landi og spyr hvaða rök séu fyrir því að skattar...
Lögregla tjáir sig ekki um handtöku athafnamannsins – „Sjáum til þegar líður á daginn“
📅 05.10.2026 👁️ 1
Lögregla tjáir sig ekki um handtöku athafnamannsins – „Sjáum til þegar líður á daginn“
„Við höfum bara ekki gefið eitt né neitt út um þetta mál heilt yfir,“ segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuð...
Fá Nóbels­verð­laun fyrir upp­götvun á ljósstýrðri erfða­tækni - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Fá Nóbels­verð­laun fyrir upp­götvun á ljósstýrðri erfða­tækni - Vísir
Vísindamennirnir þrír fá verðlaunin fyrir uppgötvun sína á ljósstýrðri erfðatækni (e. optogenetics). Í tilkynningu nefndarinnar er því lýst sem aðferð...
Hálkublettir að hausti
📅 05.10.2026 👁️ 1
Hálkublettir að hausti
Hálkan hefur snúið aftur og er ráðlegt fyrir bílstjóra að huga að henni á nokkrum vegum.Hálkublettir og éljagangur eru á Holtavörðuheiði og Bröttubrek...
Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
📅 05.10.2026 👁️ 1
Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll Laugaból Jörðin Laugaból í Mosdal við Arnarfjörð í Ísafjarðarbæ hefur verið sett á sölu. Ásett verð er...
Fluttu allar sprengju­flug­vélar frá RAF Fair­ford - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Fluttu allar sprengju­flug­vélar frá RAF Fair­ford - Vísir
Embættismenn bandaríska varnarmálaráðuneytisins staðfestu í gær að vélarnar, sem taldar eru vera tólf B-1 sprengjuflugvélar, hefðu verið fluttar aftur...
Why has Spain's PM called a snap election?
📅 05.10.2026 👁️ 1
Why has Spain's PM called a snap election?
A series of measures to tackle the housing crisis were defeated in parliament on Friday
Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í læknis­fræði? - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í læknis­fræði? - Vísir
Ár hvert veitir Nóbelnefndin hin virtu Nóbelsverðlaun í flokkunum lífefna- og læknisfræði, eðlisfræði, efnafræði, bókmenntum og að lokum friðarverðlau...
Samfylkingin sakar Sjálfstæðisflokkinn um trúnaðarbrest
📅 05.10.2026 👁️ 3
Samfylkingin sakar Sjálfstæðisflokkinn um trúnaðarbrest
„Það varð ákveðinn trúnaðarbrestur sem varð til þess að við gátum ekki haldið áfram. Þetta er leiðinleg staða,“ segir Svavar Grétarsson, oddviti Samfy...
Average five-year mortgage rate hits 6% for first time in three years
📅 05.10.2026 👁️ 3
Average five-year mortgage rate hits 6% for first time in three years
The cost of a new fixed-rate mortgage has been rising in recent weeks as lenders face higher costs.
Vinsælt að fá sjálfu með íslenska hestinum
📅 05.10.2026 👁️ 2
Vinsælt að fá sjálfu með íslenska hestinum
„Það sem við erum að gera er í sjálfu sér ekkert merkilegt en ferðamenn hafa eimitt áhuga á því sem okkur finnst hversdagslegt,“ segir Hrafnhildur Guð...
Spain's Prime Minister Pedro Sánchez calls early election
📅 05.10.2026 👁️ 0
Spain's Prime Minister Pedro Sánchez calls early election
Sánchez says Spain will head to the polls on 29 November after recent defeats on measures aimed at addressing the country's housing crisis.
Höfðar mál gegn lög­reglunni vegna húsleitarinnar - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Höfðar mál gegn lög­reglunni vegna húsleitarinnar - Vísir
Andrew var handtekinn snemma morguns þann 19. febrúar 2026 á heimili sínu í Sandringham-höll. Sex lögreglubílar og átta lögreglufulltrúar mættu á heim...
Rigndi 37 daga í röð í Tókýó
📅 05.10.2026 👁️ 3
Rigndi 37 daga í röð í Tókýó
Mestu rigningartíð sem heimildir eru til um í Tókýó, höfuðborg Japans, er lokið. Hún stóð í 37 daga, lengur en nokkru sinni fyrr, og úrkoman var þrefö...
Geta tvöfaldað framleiðslu á AVT02
📅 05.10.2026 👁️ 3
Geta tvöfaldað framleiðslu á AVT02
Alvotech hefur fengið samþykktan viðauka við markaðsleyfi á Bandaríkjamarkaði fyrir AVT02, sem er hliðstæða við Humira-líftæknilyfið. Í tilkynningu fr...
Var búinn að nota Ozempic í ár þegar hann tók eftir bletti í auganu – Varð blindur viku seinna
📅 05.10.2026 👁️ 3
Var búinn að nota Ozempic í ár þegar hann tók eftir bletti í auganu – Varð blindur viku seinna
Bandaríski faðirinn Edward Gillen, 59 ára, segist hafa misst sjónina varanlega eftir að hafa notað Ozempic. Hann hefur höfðað mál gegn framleiðanda ly...
Slitu sam­starfinu vegna trúnaðar­brests „sem ekki var hægt að líta fram­hjá“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Slitu sam­starfinu vegna trúnaðar­brests „sem ekki var hægt að líta fram­hjá“ - Vísir
Meirihlutinn sprakk í gær en engar nánari skýringar hafa fengist á því hvers vegna samstarfi flokkanna lauk.  Bæjarfulltrúum barst póstur frá forseta ...
Krakkarnir taka ekkert mark á pabba sínum
📅 05.10.2026 👁️ 3
Krakkarnir taka ekkert mark á pabba sínum
Leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck segir að krakkarnir hans hafi engan áhuga á sambandsráðum hans.Hann sagði í spjallþætti Jimmy Kimmel að hann hef...
Prinsinn fyrrverandi dregur lögregluna fyrir dóm
📅 05.10.2026 👁️ 2
Prinsinn fyrrverandi dregur lögregluna fyrir dóm
Dómstóll í Lundúnum tekur á fimmtudag fyrir mál Andrew Mountbatten-Windsor gegn bresku lögreglunni vegna húsleitar sem var gerð á heimili hans í febrú...
Íslenskur athafnamaður handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi
📅 05.10.2026 👁️ 3
Íslenskur athafnamaður handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi
Íslenskur karlmaður sem grunaður er um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. RÚV greinir ...
Borga fyrir taka leka sílikonpúða úr brjóstum en ekki fyrir að lækna fylgikvillana
📅 05.10.2026 👁️ 3
Borga fyrir taka leka sílikonpúða úr brjóstum en ekki fyrir að lækna fylgikvillana
Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn konu um greiðsluþátttöku í lækniskostnaði erlendis, vegna fylgikvi...
Rubio heimsækir Ísland í dag
📅 05.10.2026 👁️ 1
Rubio heimsækir Ísland í dag
Rubio heimsækir Ísland í dag Marco Ru­bio ræð­ir við ráða­menn í Reykja­vík um efna­hags- og ör­ygg­is­mál. Heim­sókn­in er hluti af Evr­ópu­ferð hans...