Meirihlutinn sprakk í gær en engar nánari skýringar hafa fengist á því hvers vegna samstarfi flokkanna lauk.
Bæjarfulltrúum barst póstur frá forseta bæjarstjórnar, Hauki Andreassyni, um klukkan 18:00 í gær þar sem tilkynnt var um slitin en hvorki náðist í Hauk né oddvita Samfylkingarinnar í gærkvöldi.
Í yfirlýsingu sem birtist á Facebooksíðu Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ í gærkvöldi segir að ákvörðun um slitin hafi verið tekin af aðal- og varamönnum framboðsins í gær.
„Hana má rekja til trúnaðarbrests í samstarfinu sem ekki var hægt að líta framhjá. Fulltrúar Samfylkingar og óháðra fara nú yfir stöðu mála með sínu baklandi. Hvort Samfylkingin og óháðir fari í meirihlutasamstarf með öðrum flokki er enn óráðið, en S-listinn hlaut rúm 34 prósent atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum í vor og þrjá bæjarfulltrúa kjörna.“
Samfylkingin var eini flokkurinn sem fékk þrjá fulltrúa kjörna í kosningunum í maí en tveir aðrir meirihlutar koma nú til greina. Annars vegar gæti Samfylkingin myndað fimm manna meirihluta með tveimur fulltrúum Framsóknar, eða Sjálfstæðisflokkurinn myndað sex manna meirihluta ásamt Framsókn og tveimur fulltrúum Miðflokksins.
Á Facebooksíðu Sjálfstæðisfélags Suðurnesjabæjar birtist stutt yfirlýsing í gær þar um frestun fundar sem var á dagskrá í gær, vegna atburðarásar sem átti sér stað.