„Langvarandi martröð“ er heiti nýrrar skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna um stöðu barna í Líbanon. Samkvæmt henni hefur Ísraelsher drepið eða sært að meðaltali sjö börn á hverjum degi frá því í byrjun mars.
Skýrslan var birt fyrir nokkrum dögum. Þar kemur fram að frá því í byrjun mars hafi minnst 261 barn verið drepið í Líbanon og meira en eitt þúsund særð. Það jafngildir að meðaltali sjö börnum á hverjum degi í þá sex mánuði sem skýrslan tekur til.
Átökin hafa aukið enn á langvarandi efnahagskreppu og ýtt æ fleirum út í fátækt. Fjórar af hverjum fimm fjölskyldum eiga í erfiðleikum með að framfleyta sér.
Yfir 20 prósent þeirra fjölskyldna sem UNICEF ræddi við sögðu að börn á heimilinu hefðu farið svöng að sofa og meira en 30 prósent sögðust ekki hafa efni á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu fyrir börnin.
Djúpstæð áhrif á sálarlíf barna
Átök hafa líka djúpstæð áhrif á sálarlíf barna, sem koma ekki endilega strax í ljós. „Elsta dóttir mín á mjög erfitt. Hún er hrædd allar nætur og hræðist auðveldlega. Öll skyndileg hljóð, til dæmis í jarðýtu, hræða hana. Hún er hrædd við mótorhjól,“ segir Faisal al-Ashi sem er á flótta í Líbanon með fjölskyldu sína.
Fyrir utan að sífellt færri hafi efni á því að senda börn í skóla þá hefur Ísraelsher skemmt eða eyðilagt á fimmta hundrað skóla í landinu.
Catherine Russell, framkvæmdastýra UNICEF, fór í heimsókn til Líbanon. Hún segir að stríð setji úr skorðum öll kerfi sem börn reiði sig á.
„Heilbrigðiskerfi, menntakerfi, opinbert barnaverndarkerfi, og þegar þessum kerfum er raskað gerir það börnum virkilega erfitt fyrir og þýðir að við reynum að púsla brotunum saman svo börn missi ekki mörg ár úr menntun eða heilbrigðisþjónustu.“