Kostnaður við íþróttaiðkun barna getur hlaupið á hundruðum þúsunda á ári, samkvæmt nýrri úttekt ASÍ.
Tugþúsunda munur getur verið á æfingagjöldum félaga fyrir jafngömul börn og kostnaður eykst oft með aldri og auknum kröfum.
Þegar fleira en eitt barn er á heimilinu og börnin stunda fleiri en eina íþrótt getur samanlagður kostnaður orðið mikill.
Flest sveitarfélög landsins bjóða frístundastyrki, misháa, sem ganga upp í æfingagjöld. Frístundastyrkurinn er greiddur árlega.
Prófessor í félagsfræði segir íþróttir barna orðnar að iðnaði sem hafi neikvæðar afleiðingar bæði fyrir börn og foreldra.
Æfingagjöldin ein og sér sligandi
Samanlögð árgjöld hjá tíu og tólf ára systkinum sem æfa knattspyrnu og körfubolta hjá Haukum eru 657.600 krónur.
Eftir tvo 65.000 króna frístundastyrki frá Hafnarfjarðarbæ standa 527.600 krónur eftir.
Hjá Fylki eru samanlögð gjöld 587.300 krónur fyrir þessi sömu systkini. Eftir tvo 75.000 króna styrki frá Reykjavíkurborg standa 437.300 krónur eftir.
Munurinn er 90.300 krónur á ári.
Sömu sögu má segja um æfingagjöld í öðrum íþróttagreinum.
Fjölskyldur geta staðið frammi fyrir ólíkum fjárhagslegum þröskuldi þegar kemur að íþróttaiðkun barna.
Æfingagjöldin eru nefnilega ekki einu útgjöldin því ofan á þau geta bæst við hundruð þúsunda árlega vegna skófatnaðar, íþróttafatnaðar, ferðalaga og mótsgjalda.
Aukaæfingarnar fyrir þau efnameiri
Börn allt niður í sex ára geta svo mætt á kostnaðarsamar aukaæfingar, bæði hérlendis og erlendis, í fjölda íþróttagreina, svo sem í fótbolta, dansi, fimleikum, körfubolta og handbolta.
Bæði foreldrar og börn geta upplifað þrýsting á að taka þátt í sem flestu, með neikvæðum afleiðingum.
Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir að þróunin sé á villigötum.
„Við erum með kerfi á Íslandi sem byggir á íþróttum fyrir alla og á að vera aðgengilegt fyrir alla. Þetta er í nærsamfélaginu, íþróttafélög eru samfélagsfélög. Þá skýtur skökku við ef að við erum farin að sjá það að þeir tekjuminni hafa síður tækifæri til að taka þátt. Þá erum við komin á villigötur einhverjar.“
Viðar segir Ísland hafa byggt upp farsælt kerfi undanfarna áratugi með jafnvægi milli keppni og æfinga annars vegar og leiks og frelsis hins vegar.
Því jafnvægi sé nú ógnað.
„Og íþróttir eru orðnar miklu meiri iðnaður og sem iðnaður eru íþróttir á öðrum forsendum.“
Afreksvæðingu barna fylgja neikvæðar afleiðingar
Að mati Viðars er þróunin orðin sú að horft sé á að búa til framtíðar afreksfólk frekar en að búa til umhverfi þar sem börn fái að vaxa og dafna á allan hátt.
Meiri áhersla á keppni, árangur og skipulagðar æfingar dragi úr leiknum sem á að fylgja íþróttastarfi barna. Mikil pressa er á foreldra og börn að fylgja aukinni áherslu á afreksvæðingu.
„Í fyrsta lagi ýtir þetta undir mikið brottfall, það er miklu meiri samkeppni með alls konar neikvæðum afleiðingum sem það hefur og rannsóknir sýna það að þetta er ekki líklegra til að skila afreksfólki.“
Börn þroskast í íþróttaleikjum án skipulags og þjálfara
Viðar vill frekar sjá börn að leik í íþróttum en að bæta við kostnaðarsömum og skipulögðum æfingum.
Hann segir mikinn þroska felast í því fyrir börn að leika sér í íþróttum utan skipulagðra æfinga og án fyrirmæla þjálfara.
„Þau þurfa að skipta í lið, þau þurfa að dæma, taka ábyrgð og taka ákvarðanir. Þetta eflir þau og styrkir þau í stóra samhenginu.“
Viðar vill sjá breytingar.
„Við höfum ekki staðið vörð um gildin. Fyrir hvað standa íþróttirnar? Við höfum látið markaðinn svolítið taka þau yfir. Við þurfum svolítið að snúa þessu til baka og finna þetta jafnvægi sem við höfum haft á undanförnum áratugum.“