Loftvarnarflautur tóku á móti þýska kanslaranum Friedrich Merz í óvæntri heimsókn hans til Kyiv í Úkraínu í dag. Þýskaland og Úkraína hafa undirritað samning um aukin fjárframlög til baráttu Úkraínumanna gegn innrásarstríði Rússa.
Merz heimsótti borgina óvænt í dag til að sýna fram á áframhaldandi samstöðu og stuðning Evrópu við Úkraínu.
Úkraína og Þýskaland undirrituðu samning um 1,3 milljarða evra styrk, sem jafngildir um 200 milljörðum króna, til að bregðast við auknum loftárásum Rússa.
Um 1 milljarður evra rennur til vopnakaupa, þar á meðal árásardróna, en 350 milljónir evra renna til laskaðs orkukerfis Úkraínu. Rússar beina árásum sínum að því til að skera á hita- og rafmagnsframboð þegar brátt fer að vetra.
Segir tilgangsleysi stríðsins bersýnilegt
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði bandarísk stjórnvöld hafa lagt til nýjar viðræður við bæði Úkraínu og Rússa fyrir lok mánaðar.
Loftvarnaflautur ómuðu ítrekað meðan á fundi Zelensky og Merz stóð, þar á meðal á meðan Zelensky sýndi Merz skemmdir á vísindaháskóla í borginni, þar sem tveir létu lífið í síðustu viku þegar rússneskur árásardróni hæfði bygginguna.
Merz sagði tilgangsleysi stríðsins bersýnilegt og að villimannslegum árásum Rússa á úkraínsku þjóðina yrði að linna.
Borgarstjóri Kyiv segir árásum ekki hafa linnt undanfarna sólarhringa þar á meðal á íbúðarhverfi, bensínstöðvar og skóla. Þá hafa Rússar gert árásir á samgönguinnviði yfir Dnipro-ánna sem tengja saman austur- og vesturhluta Kyiv. Brýrnar eru átta talsins og Rússar hafa gert árásir á tvær þeirra á undanförnum dögum.