Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Búast megi við einhverjum umferðartöfum og eru ökumenn beðnir um að aka með sérstakri gát og sýna tillitssemi.
„Opnað verður fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, mánudaginn 5. október kl. 14:00,“ segir í tilkynningunni.
Framkvæmdin við veginn sé langt komin og um mikilvægan áfanga sé að ræða. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki um mánaðamót nóvembers og desembers. Unnið hafi verið að því að tengja nýju vegamannvirkin inn á núverandi akbrautir sem umferð er á. Það hafi óhjákvæmilega valdið truflun á umferð.
„Undanfarið hefur verið unnið við breytingar á vegamótum Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs og er sú vinna langt komin. Eftir breytingarnar verður opið fyrir umferð um hægri beygju inn og út af Vatnsendavegi á Breiðholtsbraut.
Þá hefur verið unnið við tvöföldun Breiðholtsbrautar á móts við vegamótin til norðurs að Elliðaám. Í síðustu viku var sá kafli malbikaður. Áætlað er að þessum verkþáttum ljúki um næstu mánaðamót og verða þá allar akreinar sem tengjast vegamótum að nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut opnaðar.“
Jafnframt sé unnið við stækkun ofanvatnstjarnar milli Breiðholtsbrautar og Ögurhvarfs. Ofanvatni verður veitt í hana af stækkuðu vegyfirborði.
„Á nýjum Arnarnesvegi, milli Vatnsendavegar og Rjúpnavegar, er unnið við frágang vegfláa, veglýsingar og vegriða.“
Þá kemur fram að vinna við frágang nýrra undirganga á Arnarnesvegi norðan við Rjúpnaveg sé á lokametrunum.
„Áformað er að opna göngu- og hjólastígana fyrir umferð fyrstu vikuna í nóvember. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar, hraðatakmarkanir og sýna aðgát við framkvæmdasvæðið.“