Davíð Oddsson lýsir því í um tuttugu ára gömlu viðtali við Evu Maríu Jónsdóttur hvernig hann beitti svokallaðri smjörklípuaðferð til að breyta umræðunni þegar honum fannst andstæðingar ætla að koma sér í bobba.
Aðferðina segist hann hafa lært af föðursystur sinni, sem notaði smjörklípu til að halda órólegum ketti uppteknum. Sjálfur hafi hann stundum beitt sambærilegri aðferð í stjórnmálum.
Myndbandið með þessum hluta viðtalsins má sjá hér að neðan.
20 ára gamalt viðtal, frá því í september 2006, þegar Davíð Oddsson hætti í stjórnmálum. Þarna lýsir hann meðal annars smjörklípuaðferðinni. https://t.co/Qs88jn2CGg
— Arnar Arinbjarnarson (@arnarar) September 28, 2026
Svaraði þegar honum sjálfum hentaði
Eva María spyr Davíð hvort hann hafi átt einhverja eftirlætis „sprengju“ til að varpa inn í stjórnmálaumræðuna.
Davíð segist ekki hafa litið á þetta sem sprengjur. Hins vegar hafi hann stundum haft þann hátt á að svara ekki þegar þingmenn eða fjölmiðlar vildu fá svör.
„Ég svaraði þegar mér hentaði að svara og þess vegna kannski virkaði það frekar eins og sprengja.“
Hefði svarið komið þegar allir vildu fá það hefði það ef til vill aðeins verið eðlilegt framhald umræðunnar, segir hann.
Spurður hvers vegna hann hafi haft þennan hátt á segist Davíð hafa viljað hugsa sinn gang og meta stöðuna. Hann hafi einnig viljað stýra atburðarásinni, enda væri hún þá líklegri til að fara í þann farveg sem honum sjálfum væri hugnanlegur.
Smjörklípa hélt kettinum uppteknum
Davíð segir að þegar honum fannst gerð atlaga að sér hafi hann viljað ráða því hvernig hann brytist út úr henni og stundum fá menn til að hugsa um eitthvað annað.
Þá hafi smjörklípuaðferðin komið að gagni.
Föðursystir hans hafi átt kött sem gat verið órólegur og erfiður. Hún hafi tekið stóra smjörklípu og sett í feldinn á honum. Kötturinn hafi þá setið næstu þrjá tíma við að sleikja sig.
Davíð segist stundum hafa notað þessa aðferð þegar menn ætluðu að koma honum í bobba vegna einhvers álitamáls.
„Þá breytti ég umræðunni og setti smjörklípu á andstæðingana og þeir sátu og sleiktu sig í margar vikur á eftir.“
„Hann misskilur tilveruna“
Í viðtalinu lýsir Davíð einnig sýn sinni á samskipti stjórnmálamanna og fjölmiðla.
Fjölmiðlamenn séu ekki að hringja í stjórnmálamenn vegna þess að þeir telji sig geta gert þeim greiða, segir hann.
„Stjórnmálamaður sem heldur það, hann misskilur tilveruna.“
Davíð lýkur frásögninni af smjörklípuaðferðinni á því að segjast geta upplýst um hana nú þegar hann sé hættur og kominn í „skoðanafrí“.