Jarðskjálfti af stærðinni 3,4 varð milli Hamarsins og Skaftárkatla í Vatnajökli klukkan 12:18.
Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að það sé virkt jarðskjálftasvæði. Þar hafi síðast orðið jarðskjálfti yfir þremur að stærð 10. desember í fyrra, í hrinu sem þá var í gangi. Stærsti skjálftinn í þeirri hrinu mældist 3,94 að stærð þann 6. desember 2025.
Veðurstofu hafa engar tilkynningar borist um að skjálftans hafi orðið vart í byggð og enginn órói fylgir honum.