Ken Urker, barnsfaðir og sambýlismaður Gypsy Rose Blanchard, fannst látinn 1. október, á 34 ára afmælisdaginn sinn. Hann lætur eftir sig tveggja ára dóttur með Blanchard. Bróðir og mágkona Blanchard komu að Urker látnum á heimili hans.
Lögreglan telur hann hafa látist af völdum of stórs fíkniefnaskammts en málið er enn til rannsóknar. Á heimilinu fundust sprautunál, skeið og brúnt efni. Að sögn lögreglu hafa ekki fundist ummerki um að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.
Blanchard birti færslu á Instagram eftir andlát Urker og sagðist ekki vita hvort hann hafi ætlað sér að láta lífið eða ekki. Hann hafi ekki verið á góðum stað. Það hafi tekið sinn toll að vera undir smásjá samfélagsmiðla og fjölmiðla.
Kynntist Urker á meðan hún afplánaði dóm
Blanchard kynntist Urker á meðan hún afplánaði fangelsisdóm fyrir að hafa myrt móður sína, Dee Dee Blanchard, í samverknaði við þáverandi kærasta sinn, Nicholas Godejohn. Hann framkvæmdi verkið en hún skipulagði það.
Málið vakti mikla athygli og hafa bæði kvikmyndir og hlaðvörp verið gerð um það.
Móðir Blanchard ól hana upp sem langveikt barn og beitti hana ofbeldi. Hún gekkst meðal annars undir aðgerðir, notaði hjólastól lengi vel og var talin greindarskert. Mæðgurnar fengu mikinn stuðning frá samfélagi sínu og ýmsa aðstoð í formi peningagjafa og styrkja.
Á daginn kom að Dee Dee þjáðist af Munchausen by Proxy og hafði bæði framkallað og logið um veikindi dóttur sinnar. Blanchard bar fyrir sig að hún hafi ekki talið sig eiga aðra úrkosti en að bana móður sinni.