Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Arnþrúður Karlsdóttir
Mynd: RÚV/Skjáskot
Rekstur Útvarps Sögu batnaði verulega á síðasta ári og nam hagnaður félagsins 17,3 milljónum króna. Til samanburðar var hagnaðurinn 564 þúsund krónur árið áður.
Viðskiptablaðið greinir frá þessu.
Tekjur félagsins, sem sinnir útvarpsrekstri og dagskrárgerð, námu 84 milljónum króna og jukust úr 69 milljónum milli ára. Útvarp Saga fékk jafnframt 8,4 milljóna króna fjölmiðlastyrk árið 2025.
Eigið fé snerist úr 12,5 milljóna neikvæðri stöðu í 4,8 milljónir í plús. Arnþrúður Karlsdóttir átti 98,6% hlut í félaginu í árslok.