Flores: Dvergþjóðin á jarðskjálftaeyjunni
Hræðilegur jarðskjálfti á Flores vakti aftur athygli á því að þar – og hvergi annars staðar – hafa fundist leifar af annars óþekktri manntegund
Nú seinni part sumars varð skelfilegur jarðskjálfti á eyjunni Flores í Indónesíu. Fréttir herma að tugir manna hafi látið lífið, mörg hundruð meiðst og eignatjón orðið gífurlegt.
Flores er að flatarmáli um það bil 15 prósent af stærð Íslands og þar hafa undanfarið búið tvær milljónir manna. Þótt eyjan sé tiltölulega skammt frá ferðamannaparadísinni Bali þekkja hana tiltölulega fáir utan Indónesíu.
En fyrir rétt rúmum 20 árum var reyndar gerð á Flores uppgötvun sem vakti um sinn gríðarlega mikla athygli á eyjunni.
Leifar af áður óþekktri og afar smávaxinni manntegund fundust þar í helli.
Meðal annars og ekki síst fannst heilleg steingerð beinagrind af konu sem greinilega var fullorðin en hafði verið aðeins einn metri á hæð.
Fundur „litlu frúarinnar frá Flores“ vakti gríðarlega athygli mannfræðinga. Strax lá ljóst fyrir að hún var ekki afar lágvaxin venjuleg manneskja og hún hafði heldur ekki verið haldin einhverjum sjúkdómi sem …