Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands reið skjálftinn yfir klukkan sextán mínútur yfir tólf og var 3,4 að stærð.
Skjálftinn var á milli Hamarsins og Skaftárkatla í Vatnajökli sem er virkt jarðskjálftasvæði. Síðast varð skjálfti á þessu svæði yfir 3 að stærð þann 10. desember 2025. Þá var hrina í gangi á svæðinu og mældist stærsti skjálftinn í þeirri hrinu 3,94 þann 6. desember 2025.
„Engar tilkynningar hafa borist um að skjálftans hafi orðið vart í byggð og enginn órói fylgir,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.