Nýtt og stærra kvennaathvarf er þétt setið aðeins viku frá opnun. Framkvæmdastýra athvarfsins segir nýja kynslóð farna að leita skjóls í athvarfinu.
Nýja Kvennaathvarfið var formlega opnað 3. september en var ekki tekið í notkun fyrr en í síðustu viku. Um 500 konur leita til athvarfsins á hverju ári til að fá ráðgjöf og stuðning.
Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir það hafa komið starfsfólki á óvart hve margir hafi leitað til athvarfsins strax og það opnaði.
Mikil harka og mjög alvarlegir áverkar
Um 17 börn og 20 konur dvelji í athvarfinu um þessar mundir. Tvær konur hafi verið fluttar í athvarfið á Akureyri til að létta á stöðunni á höfuðborgarsvæðinu. Linda segir þetta tölur sem samtökin hafi ekki séð áður.
Það segir okkur einfaldlega að ofbeldi í nánum samböndum og heimilisofbeldi virðist á engan hátt vera að minnka í samfélaginu. Við erum að sjá mikla hörku, við erum að sjá alvarlega áverka, við erum að sjá kyrkingartak og höfuðáverka og mjög alvarlega áverka. Við erum að sjá ungar konur koma. Þetta virðist vera ný kynslóð að vaxa upp við að beita alvarlegu ofbeldi og svo náttúrulega alvarlegt andlegt ofbeldi og mikil eftirhelling sem við erum að sjá.
Gerendur ættu að þurfa að víkja
Linda segir nýlega prjónauppskriftarherferð athvarfsins kunna að eiga þátt í aukinni aðsókn núna, en almennt sé erfitt að greina mynstur í því hvenær konur leiti mest til samtakanna. Hópurinn sem leiti til athvarfsins sé afar fjölbreyttur. Konur á öllum aldri, úr öllum stigum samfélagsins og af alls kyns þjóðernum leiti sér aðstoðar hjá athvarfinu.
Um 80% þeirra kvenna sem leiti sér ráðgjafar séu Íslendingar. Um 60-70% þeirra sem dvelji í athvarfinu séu konur af erlendum uppruna, enda eigi þær oft lítið eða ekkert bakland á Íslandi.
Linda segir óskandi að löggjafarvaldið gæfi í við að tryggja öryggi kvenna og barna á heimilum þeirra. Gerendur ofbeldis ættu frekar að þurfa að víkja af heimilum. Nýja athvarfið sé þó vel í stakk búið til að taka á móti þeim sem þangað leita.
Það er alltaf pláss í kvennaathvarfinu fyrir konur og börn þannig að við gætum alltaf að því að það sé laust herbergi ef konan þarf að komast til okkar í dvöl.