Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að á Íslandi tali þingmenn meira en sést á öðrum þingum og lýsir því sem ákveðnu samhæfingarvandamáli enda fari magn og gæði oft ekki endilega saman. Gera þurfi breytingar til að auka traust og virðingu til þingsins.
„Ég held að það sem við þurfum að gera er að setjast niður og skoða hvernig önnur þing leysa sambærileg vandamál. Það þarf að huga að minnihlutavernd á þinginu og í dag er minnihlutaverndin falin í rétti þeirra til að tala eins mikið og þeir vilja.“
Það að þingmenn tali minna og geri meira myndi að sögn Daða auka virðingu þingsins til lengri tíma.
„Það er hins vegar erfitt að taka þessar ákvarðanir. Stjórnarandstaðan kann auðvitað að meta þau réttindi sem hún hefur. Stjórnin, hver sem hún er á hverjum tíma, vill alltaf draga úr þeim. Eiginlega einu tímarnir þar sem hefur verið mögulegt að gera breytingar á þingsköpum á Íslandi er árið fyrir þingkosningar af því þá veit enginn hver verður í minnihluta og hver verður í meirihluta og þá geta menn sest niður og reynt að meta þetta svona með einhvern veginn hlutlausum hætti.“
„En þarna þurfum við að gera breytingar. Það er mjög óheppilegt að ímynd þingsins í samfélaginu sé að það sé mikið gasprað og lítið gert vegna þess að það er ósanngjarnt gagnvart þinginu. Þingið er grundvallarstofnun í íslensku samfélagi og það eru hagsmunir okkar allra að virðing þingsins sé mikil.“