Bókun 35 var tekin fyrir af Maríu Rut Kristinsdóttur, þingmanni Viðreisnar, og Snorra Mássyni, þingmanni Miðflokksins á Sprengisandi í morgun.
„Mér finnst mjög mikilvægt að einhvern veginn hífa þessa umræðu upp úr einhverjum skotgröfum,“ sagði María Rut.
„Ef að sumarið gaf okkur eitthvað, umræðan um Evrópumálin og umræðan um, um svona stöðu okkar í heiminum. Þá fannst mér sumarið gefa okkur það að við vorum þó öll sammála um það að við verðum að rækta EES-samninginn betur.“
Það var stór hluti af máli þeirra sem töluðu gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið að Ísland væri þegar hluti af EES-samningnum og nægir hann. Ráðherrar og flokksmenn þeirra hafa því gripið í þann málaflutning og segja það skýrt að allir ættu að tala fyrir betrumbættum EES-samningi.
Snorri sagði hins vegar að við inngöngu Íslands í EES-samninginn hafi skuldbindingar gagnvart bókun 35 verið innleiddar eins og menn töldu hæft. Sú innleiðing hafi dugað í þrjátíu ár þar til Evrópusambandið hóf að gera athugasemdir.
„Þá töldu menn ekki fært að ganga lengra en að fara með þessa lögskýringarreglu inn í stað þess að hafa þetta forgagnsreglu. Þá er maður einmitt kominn út í lögfræðina en það er munurinn,“ sagði hann.
Geti ekki haldið og sleppt
Í liðinni viku vísaði Eftirlitstofnun EFTA máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að EES-reglur haldi gildi sínu.
„Síðasta ríkisstjórn reyndi líka að koma þessu máli í gegn og það tókst ekki og ég held að þetta séu áratugir sem að ESA hefur verið svolítið á bakinu á okkur Íslendingum hvað það varðar að klára þetta mál og ég held að þetta lýsi því kannski að þolinmæðin er pínu á þrotum. Við getum ekki bæði haldið og sleppt,“ sagði María Rut.
Snorri telur það hreinlegast að skera úr um málið á vettvangi dómstólsins að hluta til vegna pólitískra ástæðna.
„Ekki vegna þess að það vanti raunverulega upp á að við uppfyllum skyldur okkar gagnvart samningnum. Ég lít ekki svo á enda var enginn sem leit svo á hérna áratugum saman þar til menn fóru að breyta skilningi sínum á þessu,“ sagði hann.
Geri dómurinn þá kröfu að innleiða þurfi bókun 35 þurfi einnig að ræða hvort að gera þurfi breytingar á stjórnarskrá.
Standi vissulega með samningnum
Snorri, munið þið hérna þæfa þetta mál eins lengi og mikið og þið getið?
„Ég held að það sé aldrei sjálfstætt markmið að þæfa nokkurt mál. Við munum sannarlega taka, eins og þú heyrir í þessu máli, í svona útvarpsviðtali er maður á hundavaði og kemst ekki inn í innri og ytri víddir fullveldishugtaksins í þessu, í sambandi við þetta mál sem er í alvörunni mjög mikilvægt og þetta er ekki bara eitthvað smámál og það er ekki eina leiðin okkar Íslendinga til þess að uppfylla okkar skuldbindingar sem ég sannarlega tel að við eigum að gera eitthvað,“ sagði Snorri.
„Af hverju standið þið bara ekki með EES-samningum?“ spyr María þá og sagðist Snorri vissulega standa með samningnum.
„Því hvernig við Íslendingar einmitt gætum okkar hagsmuna, hvernig mótaðili okkar gæti sinna hagsmuna. Það er ekki að standa með sínum skuldbindingum sínum að samþykkja allt umyrðulaust frá mótaðilanum og innleiða það.“