Einn af hverjum þremur karlmönnum á aldrinum 18–24 ára er ósammála því að karlar og konur eigi að njóta jafnréttis. Þetta kemur fram í skýrslu um stöðu karlmennsku á Norðurlöndunum.
Skýrslan var unnin af alþjóðlegu hugveitunni Equimundo – miðstöð karlmennsku og félagslegs réttlætis, að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar. Þar eru ýmsar hliðar karlmennskunnar rannsakaðar. Vísir greindi fyrst frá niðurstöðum skýrslunnar.
Samkvæmt henni telja um 55% ungra manna að karlmenn eigi að vera fyrirvinnur heimilisins. 42% telja að karlar eigi að eiga lokaorðið í nánum samböndum. 51% telur karlmenn vera betri stjórnendur í fyrirtækjum en konur.
Íslenskir karlmenn almennt íhaldssamari
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að íslenskir karlmenn eru almennt með íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en karlmenn í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Þess skal þó getið að úrtakið á Íslandi var talsvert minna en í hinum löndunum.
Til að mynda telja þeir í mun meiri mæli að það að leysa átök með ofbeldi sé hluti af karlmennsku, sem og að karlmenn eigi fremur en konur að afla tekna til að framfleyta fjölskyldum sínum.
Á hinn bóginn eru þeir líklegri til að segja að föðurhlutverkið sé hluti af því sem felist í karlmennsku. Þá telja þeir í minna mæli en karlmenn á hinum Norðurlöndunum að karlmennska felist í því að vera við stjórnvölinn.
Þegar nethegðun var skoðuð mátti sjá að íslenskir karlmenn skáru sig úr þegar kom að því hvaða þekktu einstaklinga og áhrifavalda þeir þekktu og/eða fylgdu. Á Íslandi var engin kona á topp fimm listanum.
Í Danmörku, Svíþjóð og Noregi var aðeins ein kona á listanum en það var aðgerðarsinninn Greta Thunberg. Í Finnlandi prýddu tvær konur topp fimm listann en það voru Greta Thunberg og Sanna Marin, fyrrverandi forsætisráðherra landsins.
Helmingur telur karla eiga erfiðar uppdráttar en konur
Þegar horft er á breiðara aldursbil á Norðurlöndunum öllum, 18–45 ára, styðja tveir þriðju karlmanna launajafnrétti og 75% telja að koma eigi jafnt fram við karla og konur. Helmingur þeirra telur aftur á móti að femínismi snúist um að konur eigi að vera æðri körlum. Sama hlutfall telur karla eiga erfiðara uppdráttar en konur í dag.
Karlar 35 ára og eldri eru líklegastir til að telja sig eiga einhvers konar tilkall til kynlífs og eiga rétt á því að vera ósáttir sé þeim neitað um það, eða um 51%.
Heilt yfir sýnir könnunin þó að menn á Norðurlöndunum telja umhyggju og vináttu einkennandi fyrir karlmennsku, annars vegar 80% og hins vegar 84%.
Svipað hlutfall telur það einkennandi fyrir karlmennsku að hjálpa þeim sem þurfa, deila heimilisstörfum og umönnun og leysa ágreining með samræðum.
Fjárhagslegt óöryggi tengt þrengri viðhorfum
Meira en helmingur karla telur að enginn þekki þá í raun. Fjórðungur karla og kvenna sem svöruðu telja sig aldrei muna finna ástina.
Tæplega helmingur þeirra karla sem svöruðu könnuninni var með þröngar hugmyndir um kynjahlutverk, sjálfsbjargarviðleitni og hörku og um tveir þriðju sögðust frekar leysa vandamál sín einir en að ræða þau við aðra.
Samkvæmt skýrslunni eru slík viðhorf afar tengd fjárhagslegu óöryggi. Karlar sem aðhyllast slíkar hugmyndir eru tvöfalt líklegri til að finna sterkan tilgang í lífinu en jafnframt 6,5 sinnum líklegri til að hafa haft sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahugsanir á síðustu tveimur vikum.
Um 49 prósent karla sjá ekki lengur tilgang með háskólanámi og 54 prósent yngstu karlanna telja að eina leiðin til árangurs sé að græða hratt.