Ríkisútvarpið greinir frá því að maðurinn sé grunaður um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem fjallað hefur verið um en þar voru sautján manns í upphafi handteknir í aðgerðum lögreglu hinn 22. september, þar á meðal framkvæmdastjóri hjá BL.
Öllum þeim sautján sem voru handteknir í upphafi hefur nú verið sleppt, að því er lögreglan sagði við Vísi á föstudag.
Lögregla hefur ekki veitt svör vegna handtökunnar í Leifsstöð sem Rúv greinir frá en miðillinn segir manninn hafa verið handtekinn er hann kom með flugi frá Lissabon í Portúgal í kvöld. Í upphafi hafi átt að handtaka manninn hinn 22. september en þá hafi komið í ljós að hann væri í Portúgal.
Vél frá Lissabon lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 20.10 í kvöld, að því er fram kemur á vef Isavia.
Veistu meira um málið? Sástu handtökuna? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.
Greint var frá því á mbl.is á fimmtudag að einn hinna grunuðu, sem væri eigandi samlokustaðar, væri staddur erlendis og að lögregla hefði hvatt hann til að koma til Íslands vegna rannsóknarinnar.
Lögreglan hefur gert húsleit á nokkrum stöðum í tengslum við málið og segist hafa lagt hald á peninga, fíkniefni og fleiri muni.
Veistu meira um málið? Sástu handtökuna? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.