Lögregla handtók á níunda tímanum í kvöld íslenskan athafnamann á sextugsaldri í Leifsstöð við komuna frá Lissabon í Portúgal. Hann er grunaður um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem ráðist var í aðgerðir vegna 22. september síðastliðinn. Þetta herma heimildir fréttastofu. Flugvélin lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 20:25.
Upplýsingar fréttastofu herma jafnframt að til hafi staðið að handtaka manninn í aðgerðunum 22. september en þá hafi lögregla gripið í tómt. Í ljós hafi komið að maðurinn var staddur í Portúgal, þar sem hann dvelur gjarnan.
Maðurinn er eigandi eins fyrirtækjanna sem rannsóknin beinist meðal annars að. Hann hefur staðið í margvíslegum rekstri undanfarna áratugi bæði hér heima og erlendis, meðal annars veitingarekstri og rekstri fasteignafélaga og verktakafyrirtækja. Mbl.is sagði frá því í síðustu viku að lögregla hefði verið í sambandi við hann og hvatt hann til að koma til Íslands.
Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu 22. september, þeirra á meðal þekktir brotamenn, og sex voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þrír þeirra sátu aðeins í varðhaldi í þrjá daga, sá fjórði var látinn laus fyrir viku og tveir voru leystir úr haldi á föstudag.
Fréttastofa hefur ekki upplýsingar um hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir athafnamanninum sem handtekinn var í kvöld, en lögregla hefur einn sólarhring til að fara með slíka kröfu fyrir dóm eftir handtökuna.