Að minnsta kosti tveir voru myrtir og tugir særðust í skotárás á fjölmennri götuhátíð í borginni Vienna í bandaríska ríkinu Georgíu.
Fréttamiðlar í borginni segja árásina hafa verið gerða snemma sunnudagsmorguns að staðartíma. Hin látnu eru báðir karlmenn um tvítugt. Lögregluyfirvöld segja hina særðu hafa verið flutta á nokkur sjúkrahús í borginni. Ekki er vitað hvort nokkur hafi verið handtekinn en ítarleg lögreglurannsókn stendur yfir.